Skýr skilaboð til erlendra fjárfesta
Fátt er brýnna um þessar mundir en að efla og styrkja hæfni atvinnulífsins til þess að framleiða og selja vörur og þjónustu til þess að afla gjaldeyris. Augljóst er að til þess þurfum við erlent fjármagn í formi lána en ekki síður í formi eigin fjár í atvinnurekstri. Forsenda þessa er að Íslandi takist að ávinna sér traust lánveitenda og fjárfesta, segir Jón Steindór Valdimarsson framkvæmdastjóri SI.
Það er áhyggjuefni hve okkur virðast mislagðar hendur við að laða hingað erlenda fjárfesta. Gildir það bæði um hin pólitísku stjórnvöld og stjórnsýsluna. Þetta er sérstaklega alvarlegt þegar um fjárfesta er að ræða sem eru tilbúnir til þess að koma með verulegt fjármagn til uppbyggingar nýrrar starfsemi eða auka og efla það sem fyrir er. Stundum virðist manni að stefnu en ekki síður vilja skorti í þessum efnum.
Nýjasta dæmið um þetta er hvernig haldið er á málum varðandi fyrirhugaða fjárfestingu Magma í innlendum orkuiðnaði. Það er með ólíkindum að á síðustu stigum þess máls skuli rokið upp til handa og fóta til þess að ríkið kaupi hlutinn í stað hinna erlendu fjárfesta. Fyrir utan hið augljósa, sem er að ríkið hefur annað við fé sitt að gera og við þurfum nauðsynlega á gjaldeyri að halda, þá er það æði sérkennileg staða fyrir erlendan fjárfesti að standa fyrirvaralaust frammi fyrir þessari samkeppni af hálfu ríkisins.
Stjórnvöld verða að standa sig betur í þessum efnum. Við höfum ekki ráð á hringlandahætti í þessum efnum. Hringlandaháttur skapar okkur ekki traust.
Jón Steindór Valdimarsson

