Diplómanám í stjórnun og rekstri fyrirtækja
Opni háskólinn býður félagsmönnum Samtaka iðnaðarins 10% afslátt af diplómanámi í stjórnun og rekstri fyrirtækja. Um er að ræða hagnýtt 36 ECTS eininga nám samhliða vinnu. Diplómanámið í stjórnun og rekstri fyrirtækja kynnir fræðilegar og hagnýtar aðferðir sem notaðar eru við rekstur og stjórnun lítilla til meðalstórra fyrirtækja. Námið hentar þeim sem hafa reynslu en vilja dýpka sína fræðilegu og stjórnunarlegu þekkingu. Markmið námsins er að nemendur fái hagnýta þekkingu og geti nýtt sér námið í starfi á markvissan og árangursríkan hátt.
Námið er samansett af eftirtöldum námskeiðum:
Stjórnun og stefnumótun
Fjármál fyrirtækja
Rekstrargreining
Markaðsfræði
Rekstrarstjórnun
Mannauðsstjórnun
Kennslufyrirkomulag:
Námið hefst haustið 2009 og því lýkur vorið 2010
Kennsla hefst 7. september
Kennt er á mánudögum og miðvikudögum kl. 16.30 - 20.00.
Opið er fyrir umsóknir á www.opnihaskolinn.is
Nánari upplýsingar um námið og skráningar er að finna hér.

