Hulda G. Mogensen lætur af störfum
Hulda G. Mogensen lét af störfum hjá Samtökum iðnaðarins um áramótin en Hulda hefur gegnt starfi gjaldkera SI frá stofnun Samtakanna 1993.
Fyrir þann tíma starfaði Hulda hjá Landssambandi iðnaðarmanna, eða allt frá 1. desember 1960, fyrst á Laufásvegi 8 en flutti síðan með Landssambandinu á Lækjargötu 12, í húsnæði Iðnaðarbankans. Í maí 1973 flutti Landssambandið í Hús iðnaðarins að Hallveigastíg 1 og var starfrækt þar allt til ársins 1993 þegar Landssambandið varð einn af stofnaðilum Samtaka iðnaðarins. Hulda starfaði hjá SI á Hallveigarstíg 1 og að Borgartúni 35 en þangað fluttu Samtökin starfsemi sína 24. júní 2002.
Samtök iðnaðarins þakka Huldu langt og óeigingjarnt starf fyrir iðnaðinn þau rúmu 43 ár sem hún hefur starfað í hans þágu.
©Samtök iðnaðarins, 2. janúar 2004

