Breytt innheimtuferli félagsgjalda
Innheimtuferli félagsgjalda Samtaka iðnaðarins hefur verið endurskoðað. Allir verkferlar við innheimtuna hafa verið endurmetnir, skýrðir nánar og færðir inn í gæðahandbók SI. Innheimtan, skipting greiðslna og utanumhald er mun auðveldari en áður var með nýju bókhaldskerfi, Navision Financials, sem öll samtökin í Borgartúni 35 hafa tekið upp.
Samtökin hafa ekki verið mjög harðskeytt í innheimtuaðgerðum til þessa en þeir, sem greiða félagsgjöld sín skilvíslega, gera eðlilega kröfu til þess að eitt gangi yfir alla í þeim efnum. Til þess að fylgja eftir innheimtu félagsgjalda hefur verið samið við LOGOS lögmannaþjónustu um að annast alla vanskilainnheimtu fyrir SI. Er áformað að framvegis verði vanskilainnheimta hafin mun fyrr en verið hefur.
Samtökin innheimta ekki einasta eigin félagsgjöld, heldur einnig fyrir Samtök atvinnulífsins og aðildarfélög SI. Til þess að kynna þessar nýju innheimtureglur og breytt ferli við innheimtu félagsgjalda verður haldinn sérstakur kynningarfundur fyrir stjórnir aðildarfélaga, á skrifstofu SI, að Borgartúni 35 hinn 5. febrúar nk. kl. 8:00 - 9:00.
