Ályktun stjórnar Samtaka iðnaðarins
Samtök iðnaðarins fagna þeim áhuga á vexti og viðgangi hátækni- og líftækniiðnaðar sem endurspeglast í frumvarpi ríkistjórnarinnar um ríkisábyrgð útgáfu skuldabréfa vegna fjármögnunar nýrrar starfsemi Íslenskrar erfðagreiningar ehf.
Á hinn bóginn lýsir stjórn SI sig andvíga þeirri stefnu að Alþingi Íslendinga skammti einstökum fyrirtækjum starfsskilyrði með þessum hætti. Sem dæmi má nefna að heppilegra er að hafa almennar skattareglur hér þannig að þær laði að erlenda fjárfesta fremur en að ákveða skattlagningu einstakra fyrirtækja með sérlögum. Á sama hátt telur stjórn SI að stuðningur ríkisstjórnarinnar við líf- og hátæknifyrirtæki eigi að vera í formi almennra aðgerða þannig að erlend og innlend fyrirtæki geti leitað fyrirgreiðslu á jafnréttisgrundvelli.
Það er ekki og á ekki að vera hlutverk ríkisstjórnar og Alþingis að búa til störf með sérstakri lagasetningu heldur skapa atvinnulífinu þau starfsskilyrði að innlendir og erlendir fjárfestar sjá sér hag í því að leggja eigið fé í atvinnurekstur hér á landi.
