Baldur Guðnason, fyrsti dreifbýlismaðurinn í stjórn SI
Baldur Guðnason er annar nýkjörinna stjórnarmanna Samtaka iðnaðarins og jafnframt sá fyrsti sem býr utan höfuðborgarsvæðisins. Hann er 36 ára Akureyringur og er að ljúka alþjóðlegu MBA námi frá Háskólanum í Reykjavík.
Baldur er framkvæmdastjóri og aðaleigandi Sjafnar hf. á Akureyri og framkvæmdastjóri Mjallar hf. sem er í meirihlutaeigu Sjafnar hf. Þá er hann starfandi stjórnarformaður Hörpu Sjafnar hf. og á auk þess sæti í stjórnum Norðurmjólkur hf., Þekkingar Tristans hf. og Hlutabréfasjóðs Íslands hf. Baldur starfaði áður sem framkvæmdastjóri hjá Samskipum í fjórtán ár, þar af átta erlendis, í Þýskalandi og Hollandi.
