19. mar. 2002

Halla Bogadóttir, fyrsta konan í stjórn SI

Halla BogadóttirÞað þótti teljast til tíðinda að kona var kjörin til setu í stjórn Samtaka iðnaðarins á Iðnþingi í fyrsta sinn frá stofnun þeirra árið 1993. Hún heitir Halla Bogadóttir, er gullsmiður að mennt og rekur gullsmíðafyrirtæki og verslun í Reykjavík. Halla varð stúdent frá Verzlunarskóla Íslands, settist síðan í Kennaraháskólann og lauk B.Ed. prófi árið 1980. Eftir það starfaði hún sem kennari í 10 ár. Þá hóf hún nám í gullsmíði og hefur unnið við iðnina undanfarin 6 ár.

Halla býr yfir margþættri reynslu af félagsstörfum. Hefur meðal annars átt sæti í fulltrúaráði Kennarasambands Íslands, gegnt starfi ritara í Félagi íslenskra gullsmiða og lét nýlega af formennsku í því félagi eftir fjögur ár. Halla segir að með framboði sínu hafi hún viljað að rödd einyrkjans heyrðist í stjórn SI og hún hafi einnig áhuga á að kynna svonefndum þjónustugreinum og hinum almenna handverksmanni starf Samtakanna.