16. apr. 2002

Kristrún Heimisdóttir - nýr lögfræðingur Samtaka iðnaðarins

Kristrún HeimisdóttirKristrún Heimisdóttir er tekin við starfi lögfræðings Samtaka iðnaðarins. Kristrún er þrítug að aldri og lauk embættisprófi í lögfræði frá Háskóla Íslands 1998. Hún hefur sérhæft sig í Evrópurétti, meðal annars með lokaritgerð um fullveldi Íslands á tímum Evrópusamruna.

Hjá SI mun Kristrún sinna margháttaðri lögfræðilegri ráðgjöf og liðveislu við fyrirtæki og félög innan SI auk almennrar stefnumótunar um lögfræðileg efni. Hún hefur áður starfað sem lögfræðingur hjá Umboðsmanni Alþingis og Umboðsmanni barna en var síðast framkvæmdastjóri ReykjavíkurAkademíunnar - rannsóknasamfélags. Síðastliðið ár stundaði hún MA-nám í heimspeki sem Háskóli Íslands skipuleggur í samvinnu við University College í Cork á Írlandi og ritgerð hennar þar fjallar um „raunveruleikatengsl lögfræðinnar“ lög og daglegt líf fólks og fyrirtækja.

Kristrún tekur við starfi Ólafs Helga Árnasonar sem hafið hefur störf hjá Landsbankanum. Um leið og Samtök iðnaðarins þakka Ólafi Helga margra ára farsælt samstarf bjóða þau Kristrúnu velkomna til starfa.