29. nóv. 2002

Fréttatilkynning SI um reiknilíkan framhaldsskólanna

Að gefnu tilefni vilja Samtök iðnaðarins árétta að þau telja rétt og eðlilegt að nota reiknilíkan til þess að útdeila fjármunum til framhaldsskóla. Á fréttamannafundi 28.11. sagði Sveinn Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins: að hugsunin á bak við reiknilíkanið væri skynsamleg, þ.e. að fjárveitingar réðust af gegnsæjum og óhlutdrægum reglum, en ekki órökstuddum pólitískum ákvörðunum eins og áður var. Á fundinum var hins vegar gagnrýnt harðlega hversu seint hefur gengið að gera nauðsynlegar breytingar á umræddu reiknilíkani. Einnig kom fram að þær breytingar, sem nú hafa verið gerðar á því, taki vissulega aukið tillit til raunverulegs rekstrarkostnaðar verknámsskóla en samkvæmt frumvarpi til fjárlaga er sú leiðrétting að miklu leyti tekin til baka með flötum niðurskurði.

Samtök iðnaðarins fagna sérstaklega yfirlýsingu menntamálaráðherra, Tómasar Inga Olrich, í hádegisfréttatíma RÚV í dag um það að við lokaafgreiðslu fjárlaga verði fjárveitingar til framhaldsskólanna færðar til samræmis við niðurstöður úr endurskoðuðu reiknilíkani. Einnig er það fagnaðarefni að menntamálaráðherra hefur við sama tækifæri lýst vilja sínum til þess að tekið verði á uppsöfnuðum vanda tiltekinna skóla en hann er að mestu til kominn vegna ágalla á eldra reiknilíkani.

Með þessu verða vonandi stigin stór skref í þá átt að gera reiknilíkanið nothæft sem mælikvarða á raunverulegan kostnað við rekstur allra framhaldsskóla. Engu að síður benda skólameistarar á að þrátt fyrir þessar lagfæringar sé enn ekki tekið fullnægjandi tillit til kostnaðar við verknám svo sem vegna orku og hráefniskaupa, reiknað sé út frá óraunhæfum forsendum um nemendafjölda og 24 ára afskriftartími tækja sé einnig óraunhæfur. Um þessi atriði má vísa til ítarlegar umfjöllunar í Morgunblaðinu í dag.

Samtök iðnaðarins, Sveinn Hannesson , framkvæmdastjóri Vilmundur Jósefsson , formaður