Stefnumótun stjórnar SI - Evrópumálin efst á blaði
Stjórn, ráðgjafaráð, formenn og stjórnir aðildarfélaga SI hafa undanfarið unnið að því að endurskoða stefnu og þau mál sem leggja ber megináherslu á í starfi Samtaka iðnaðarins. Verkefnið var unnið á nokkrum vinnufundum og tóku fjölmargir félagsmenn þátt í þeirri vinnu. Hópurinn skilgreindi rúmlega 40 áhersluverkefni sem hann síðan raðaði í forgangsröð eftir mikilvægi og væntanlegum áhrifum á árangur og starfsskilyrði í iðnaði. Eftirfarandi 10 verkefni urðu efst í forgangsröðun hópsins:
| 1 Evra í stað krónu (140 stig)* | |
| Markmið: Að evra verði tekin upp í stað krónu í kjölfar inngöngu Íslands í ESB vegna hagkvæmni sem því muni fylgja, m.a. að vextir á Íslandi verði jafnháir og í samkeppnislöndum. | |
| 2 Kynning á íslenskum iðnaði (130 stig) | |
| Markmið: Að skipulagðir verði fjölmargir dagar iðnaðarins fyrir starfsgreinar innan SI í þeim tilgangi að efla innra og ytra kynningarstarf SI, aðildarfyrirtækja og fagfélaga. | |
| 3 Samkeppnistaða iðnaðarins (116 stig) | |
| Markmið: Að fá fram samanburð við önnur lönd - varðandi kostnað, vexti, vaxtamun, launaþróun, verðbólgu, o.s.frv. | |
| 4-5 Aðild að ESB - Evrópuumræðan (114 stig)* | |
| Markmið: Að Ísland verði aðili að ESB. Unnið verði samkvæmt sérstakri áætlun sem gerir ráð fyrir kynningu, blaðaskrifum, ráðstefnum og öðrum ráðum til þess að koma á framfæri upplýsingum til að efla upplýsta umræðu og vinna málinu framgang. | |
| 4-5 Efling tæknimenntunar á Íslandi (114 stig) | |
| Markmið: Að efla tæknimenntun og stuðla að því að tæknimenntun verði gert jafnhátt undir höfði og viðskiptamenntun. | |
| 6 Laða að erlend hátæknifyrirtæki (110 stig) | |
| Markmið: Að laða til landsins hátæknifyrirtæki til að auka hagvöxt, styrkja íslensk fyrirtæki sem fyrir eru og auka atvinnumöguleika menntaðs fólks. | |
| 7 Löggilding starfsréttinda og starfsheita (109 stig) | |
| Markmið: Að gera fólk með iðn-, tækni- eða verkmenntun að eftirsóttum starfskrafti og iðnaðinn þar með að eftirsóttum starfsvettvangi. Að marka stefnu SI og aðildarfélaga um hvernig beri að standa að þessu m.a. með tilliti til þess hvert stefna beri varðandi löggildingu starfsréttinda og löggildingu starfsheita. | |
| 8 Arðsemi opinberra framkvæmda (102 stig) | |
| Markmið: Að sjá til þess að framkvæmdir á vegum opinberra aðila taki mið af arðsemi. | |
| 9 Aukin framleiðni - hagnýt viðmið (94 stig) | |
| Markmið: Að auka framleiðni í íslenskum iðnaði. Gert verði átak á vegum SI í framhaldi af könnun sem gerð hefur verið til að auka framleiðni í íslenskum iðnaði. Benchmarking: Haldið verði á lofti fregnum af velgengni innlendra og erlendra fyrirtækja . Aukin verði þekking stjórnenda til að virkja starfsmenn í hverju fyrirtæki. | |
| 10 Samkeppnisstaða íslensks iðnaðar - hagræðing í rekstri (91 stig) | |
| Markmið: Að hagræða og skapa hagkvæmar einingar í íslenskum iðnaði til að tryggja samkeppnisstöðu gagnvart erlendri samkeppni. Laga- og regluumhverfi þarf að auðvelda fyrirtækjum að sameinast og skýra þarf leikreglur fyrirtækja sem ná markaðsráðandi stöðu. | |
Auk þessara 10 meginverkefna má nefna fjögur sem voru ofarlega á forgangslista stjórnar SI en höfnuðu í næsta hópi forgangsverkefna.
- Áframhaldandi barátta fyrir lækkun vaxta
- Öflugur tækniþróunarsjóður
- Tölfræði og lykiltölur iðnaðar og starfsgreina innan SI
- Skýrar vinnureglur um opinber innkaup
Nánari upplýsingar um öll verkefnin 40:
* Ath! Verkefnin Evra í stað krónu (140 stig) og Aðild að ESB-Evrópuumræðan (114 stig) eru nátengd. Margir þátttakendur gáfu báðum verkefnum 10 stig, en þar sem aðeins mátti gefa einu verkefni 10 var þessum stigum skipt á milli verkefnanna, þ.e. hvort um sig fékk þá 5 stig. Ef þessi verkefni eru sameinuð má leggja saman stig þeirra (254 stig), sem sýnir að áherslan á þennan málaflokk er mjög afgerandi.
