Fyrirsagnalisti
Opni háskólinn býður félagsmönnum Samtaka iðnaðarins 10% afslátt af diplómanámi í stjórnun og rekstri fyrirtækja. Um er að ræða hagnýtt 36 ECTS eininga nám samhliða vinnu. Diplómanámið í stjórnun og rekstri fyrirtækja kynnir fræðilegar og hagnýtar aðferðir sem notaðar eru við rekstur og stjórnun lítilla til meðalstórra fyrirtækja.
Fátt er brýnna um þessar mundir en að efla og styrkja hæfni atvinnulífsins til þess að framleiða og selja vörur og þjónustu til þess að afla gjaldeyris. Augljóst er að til þess þurfum við erlent fjármagn í formi lána en ekki síður í formi eigin fjár í atvinnurekstri. Forsenda þessa er að Íslandi takist að ávinna sér traust lánveitenda og fjárfesta, segir Jón Steindór Valdimarsson framkvæmdastjóri SI.
Bjarni Már Gylfason, hagfræðingur SI sigraði í átakinu "Hjólað í vinnuna". Hann hjólaði tæplega 400 km á þeim 14 dögum sem átakið stóð yfir. Að þessu sinni var skipt í tvö lið sem Bjarni Már og Bryndís Skúladóttir, forstöðumaður umhverfissviðs leiddu.
Á aðalfundi Samtaka iðnaðarins á Grand Hóteli 5. mars næstkomandi verður kosið til stjórnar. Árlega er kosið um formann en að þessu sinni er kosið um fjögur almenn stjórnarsæti.
„Við þolum ekki svona ástand mjög lengi,“ segir Jón Steindór Valdimarsson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, í samtali við Fréttablaðið í dag, um þann mikla skort á lánsfé sem varað hefur mánuðum saman.
"Samtök iðnaðarins hafa verið staðföst í þeirri skoðun sinni um langt skeið að róttækra breytinga sé þörf. Þær fela hvorki í sér töfralausn á núverandi vanda né leysa okkur undan því að stjórna eigin efnahagsmálum. Það er langtímalausn sem mun leiða til meiri aga og fækka flóttaleiðum frá eigin mistökum. Um leið skapast forsendur fyrir því að langþráður stöðugleiki geti náðst." Þetta segir Jón Steindór Valdimarsson, framkvæmdastjóri SI í grein sem nýverið birtist í Vísbendingu. Greinina er hægt að lesa hér.
Þorsteinn Víglundsson, varaformaður SI skrifaði grein sem birtist í Morgunblaðinu 26. apríl sl. þar sem hann segir að tímabært sé að leita nýrra leiða við stjórn peningamála á Íslandi og svarar
andstæðingum aðildar sem haldið hafa því fram að með brotthvarfi sjálfstæðrar peningamálastefnu myndu Íslendingar missa tökin á efnahagsstjórninni. Greinina má lesa í heild sinni hér.
Samtök iðnaðarins standa fyrir opnum fundi á Hótel Borg 12. febrúar næstkomandi um stöðu kvenna í iðnaði. Fundurinn ber yfirskriftina Virkjum kraft kvenna í iðnaði og hefst klukkan 8.00 með morgunverði í boði SI. Dagskráin hefst síðan klukkan 8.30 og lýkur klukkan 10.30.
Góð mæting var á kynningarfund sem stjórn Samtaka iðnaðarins bauð alþingismönnum til í húsakynnum CCP hf. föstudaginn 25. janúar. Um 20 þingmenn komu á fundinn, ræddu málefni iðnaðar við stjórn og forsvarsmenn samtakanna og hlustuðu á stórskemmtilegan fyrirlestur um CCP og tölvuleikinn EVE online.
Sveinn Hannesson lét af störfum um síðustu mánaðamót eftir nær 16 ára starf sem framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins. Á þeim tíma hefur margt breyst, bæði hjá samtökum atvinnurekenda og í atvinnulífinu, samsetningu þess og starfsskilyrðum. Það er því við hæfi að fá Svein til að líta yfir farinn veg og rifja upp með lesendum ýmislegt sem helst hefur sett svip sinn á þessi sextán ár að hans mati.
Samtök iðnaðarins óska félagsmönnum sínum og landsmönnum öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári.
Jón Bjarni Gunnarsson hóf störf 1. desember sem aðstoðarframkvæmdastjóri hjá Samtökum iðnaðarins.
Stjórn Samtaka iðnaðarins hefur ákveðið að ráða Jón Steindór Valdimarsson í stöðu framkvæmdastjóra Samtaka iðnaðarins. Tekur hann við starfinu af Sveini Hannessyni frá og með næstu mánaðamótum.
Skrifstofa Samtaka iðnaðarins verður lokuð vegna sumarleyfa frá 16. júlí - 6. ágúst að báðum dögum meðtöldum.
Skrifstofa Samtaka iðnaðarins verður lokuð vegna sumarleyfa frá 17. júlí - 7. ágúst að báðum dögum meðtöldum.
Um miðjan júní tók Jón Sigurðsson við stöðu iðnaðar- og viðskiptaráðherra af Valgerði Sverrisdóttir sem gegnt hefur því embætti frá ársbyrjun 2000.
Stjórn SI hefur undanfarið unnið að því að móta forgangsverkefni sem leggja ber megináherslu á í starfi Samtaka iðnaðarins veturinn 20052006. Á lista stjórnarinnar eru rúmlega 30 verkefni sem stjórnin hefur flokkað og forgangsraðað eftir mikilvægi fyrir iðnaðinn í heild.
Samtök iðnaðarins vekja hér með athygli á að Iðnþing 2005 verður haldið í dag, föstudaginn 18. mars, í Versölum að Hallveigarstíg 1.
Bjarni Már Gylfason hóf störf sem nýr hagfræðingur SI nú í byrjun mars en fyrrum hagfræðingur Samtakanna, Þorsteinn Þorgeirsson, hefur látið af störfum til að taka við embætti skrifstofustjóra efnahagsskrifstofu fjármálaráðuneytisins.
Harðnandi samkeppni - Kjaramál - Stórframkvæmdir - Aukin framleiðni - Nýr háskóli - Útrás iðnfyrirtækja er meðal þess sem félagsmönnum SI er efst í huga á nýju ári.