Fréttir af SI (Síða 3)

Fyrirsagnalisti

30. des. 2004 : Að gefnu tilefni

Í framhaldi af fréttum í fjölmiðlum undanfarið af málefnum Íslandsbanka vilja Samtök iðnaðarins koma því á framfæri að Sveinn Hannesson er og verður áfram framkvæmdastjóri Samtakanna.

24. des. 2004 : Félagsmenn á Suðurnesjum heimsóttir

Stjórn SI lagði land undir fót og heimsótti félagsmenn á Suðurnesjum auk þess sem bæjarstjóri Reykjanesbæjar fræddi ferðalangana um nýtt athafnasvæði við höfnina í Helguvík.

30. nóv. 2004 : Íslenskt viðskiptaumhverfi

Á ráðgjafaráðsfundi Samtaka iðnaðarins 11. nóvember síðastliðinn kynnti Víglundur Þorsteinsson álit vinnuhóps sem stjórn SI fól að vinna um íslenskt viðskiptaumhverfi.

30. nóv. 2004 : Nýr háskóli til uppbyggingar atvinnulífsins

Á ráðgjafaráðsfundi Samtaka iðnaðarins 11. nóvember síðastliðinn var fjallað um nýjan háskóla sem SI, SA og VÍ eiga aðild að. Stefanía Katrín Karlsdóttir, rektor THÍ, og Jón Ágúst Þorsteinsson, framkvæmdastjóri Marorku, fluttu erindi um væntingar og áherslur atvinnulífsins í þessu sambandi.

1. okt. 2004 : Nýr starfsmaður SI - Bryndís Skúladóttir

Bryndís Skúladóttir hóf störf hjá SI í byrjun september. Hún tók við verkefnum Ólafs Kjartanssonar sem starfað hefur hjá SI frá stofnun.

30. jan. 2004 : Horft um öxl

Um þessar mundir eru liðin 10 ár frá því að sex félagasamtök í iðnaði tóku saman höndum og sameinuðust undir heitinu Samtök iðnaðarins. Þau voru Félag íslenskra iðnrekenda, Landssamband iðnaðarmanna, Meistara- og verktakasamband byggingamanna, Verktakasamband Íslands, Félag íslenska prentiðnaðarins og Samband málm- og skipasmiðja.

30. jan. 2004 : Raddir félagsmanna á 10 ára afmæli SI

Frá upphafi hafa Samtök iðnaðarins stutt upplýsingatæknifyrirtæki í hagsmunabaráttu þeirra. Sagan er reyndar mun lengri eða síðan 1986 þegar Félag íslenskra iðnrekenda studdi hugbúnaðarfyrirtæki í stefnumótun og undirbúning útrásar á erlenda markaði.

22. jan. 2004 : Breytt innheimtuferli félagsgjalda

Innheimtuferli félagsgjalda SI hefur verið endurskoðað og samið við LOGOS lögmannaþjónustu um að annast alla vanskilainnheimtu.

2. jan. 2004 : Hulda G. Mogensen lætur af störfum

Hulda G. Mogensen lét af störfum hjá Samtökum iðnaðarins um áramótin en Hulda hefur gegnt starfi gjaldkera SI frá stofnun Samtakanna 1993.

14. okt. 2002 : Samningur SI og EJS um viðskiptakjör

Samtök iðnaðarins og EJS hafa gert með sér vildarsamning en markmiðið með honum er m.a. að tryggja öllum skuldlausum aðildarfélögum SI bestu viðskiptakjör hjá EJS.

Samningurinn tryggir m.a. 20% afslátt af listaverði af öllum tölvum og viðeigandi íhlutum, netbúnaði og öðrum vélbúnaði s.s. búnaði sem EJS endurselur. Einnig er tryggður sami afsláttur af allri rekstrarvöru og hugbúnaði (öðrum en samningsbundnum).

Síða 3 af 3