Á vef Stjórnarráðsins segir frá því að samkvæmt tilmælum frá dómsmálaráðuneytinu munu lögregluembætti ekki afturkalla gild skírteini gefin út fyrir 10. september 2018 með ökuréttindum fyrir bílstjóra til aksturs ökutækja í flokkum C, C1, D1 og D í atvinnuskyni, sem ekki hafa lokið lögbundinni endurmenntun. Meginástæða er sú að ekki er að finna viðhlítandi refsiheimild í umferðarlögum sem leggur bann við akstri bílstjóra með gild ökuskírteini í atvinnuskyni án endurmenntunar. Krafa um endurmenntun lúti aðeins að skilyrðum fyrir útgáfu ökuréttinda. Þeir sem hafa fengið útgefin gild skírteini með atvinnuréttindum eiga því ekki á hættu á að vera sektaðir eða að ökuréttindi þeirra verði afturkölluð, meðan skírteinin eru í gildi. Áfram skylt að sækja sér endurmenntun Á vefnum segir jafnframt að öllum sem stjórna ökutækjum í þessum flokkum í atvinnuskyni sé áfram skylt að sækja sér endurmenntun. Framvegis verði ökuskírteini með atvinnuréttindum eingöngu gefin út til einstaklinga sem lokið hafa lögbundinni endurmenntun og skírteini fyrir umrædda flokka til aksturs í atvinnuskyni séu gefin út til fimm ára. Árið 2015 voru gerðar breytingar á umferðarlögum þar sem meðal annars var bætt inn ákvæði sem kveður á um skyldu ökumanna farþega- og vöruflutninga í atvinnuskyni til að gangast undir endurmenntun á fimm ára fresti og á ákvæðið, sem er að finna í 4. mgr. 50. gr. umferðarlaga, rætur sínar að rekja til tilskipunar Evrópusambandsins, 2003/59/EB.
Afturkalla ekki gild skírteini atvinnubílstjóra
Afturkalla ekki gild skírteini atvinnubílstjóra
Lögregluembætti munu ekki afturkalla gild ökuskírteini atvinnubílstjóra gefin út fyrir 10. september á síðasta ári, þó þeir hafi ekki lokið endurmenntun.

Það er að teiknast upp mjög kaldur vetur
Rætt er við Þorstein Víglundsson, formann SI, í Kastljósinu um byggingariðnað og stöðu efnahagsmála.

Stjórn Samtaka rafverktaka heimsækir Norðurál
Framkvæmdastjóri og starfsfólk Norðuráls tóku á móti stjórn Samtaka rafverktaka fyrir skömmu.

Samspil sjávarútvegs og tækni- og hugverkaiðnaðar eykur forskot Íslands
Erla Tinna Stefánsdóttir, viðskiptastjóri tækni- og hugverkaiðnaðar hjá SI, flutti erindi um samspil sjávarútvegs og tækni- og hugverkaiðnaðar á Sjávarútvegsráðstefnunni.
