Bláa lónið er Menntafyrirtæki ársins

Bláa lónið var valið Menntafyrirtæki ársins og Orkuveita Reykjavíkur Menntasproti ársins.

Bláa lónið er Menntafyrirtæki ársins

Bláa lónið var valið Menntafyrirtæki ársins og var viðurkenningin afhent á Menntadegi atvinnulífsins sem fram fór í Hörpu í gær. Menntasprotann 2023 hlaut Vaxtarsprotar Orkuveitu Reykjavíkur. Það voru Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, Eyjólfur Árni Rafnsson, formaður SA og Anna Hrefna Ingimundardóttir, aðstoðarframkvæmdastjóri SA, sem afhentu viðurkenningarnar.

Á myndinni hér fyrir ofan eru talið frá vinstri Eyjólfur Árni Rafnsson, formaður SA, Sigrún Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri mannauðssviðs Bláa Lónsins, Grímur Sæmundsen, forstjóri Bláa Lónsins, og Anna Hrefna Ingimundardóttir, aðstoðarframkvæmdastjóri SA.

Á vef SA er hægt að nálgast frekari upplýsingar um viðurkenningarhafana:

Bláa lónið - Menntafyrirtæki ársins.

Orkuveita Reykjavíkur - Menntasproti ársins.

Orkuveita-Reykjavikur
Viðurkenningarhafar Orkuveitu Reykjavíkur.

Menntaverðlaun atvinnulífsins eru veitt á árlegum menntadegi atvinnulífsins. Þetta er í tíunda sinn sem dagurinn var haldinn. Yfirskrift menntadagsins að þessu sinni var Færniþörf á vinnumarkaði . Að deginum standa Samtök atvinnulífsins, Samtök iðnaðarins, Samorka, Samtök ferðaþjónustunnar, Samtök fjármálafyrirtækja, Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi og Samtök verslunar og þjónustu.

Bláa lónið er Menntafyrirtæki ársins - Samtök Iðnaðarins