Útflutningstekjur gagnavera og tengdrar starfsemi námu 35,2 milljörðum króna á fyrri hluta þessa árs samanborið við 10,2 ma.kr. á sama tíma í fyrra samkvæmt upplýsingum frá Hagstofu Íslands. Ef fram fer sem horfir verða útflutningstekjur greinarinnar í ár um 72 milljarðar króna sem er aukning um 74% frá því í fyrra. Áætlað er að fjárfestingar gagnaveranna nemi nær 57 milljörðum króna í ár samanborið við tæpa 29 milljarða króna árið 2025. Aukningin milli ára er 27,7 ma.kr. eða 95%. Framlag greinarinnar til hagvaxtar í ár er því talsvert í formi aukins útflutnings en einnig í formi vaxandi fjárfestinga.
HELSTU NIÐURSTÖÐUR
- 245% vöxtur útflutningstekna. Á fyrri helmingi þessa árs námu útflutningstekjur gagnavera og tengdrar starfsemi 35,2 milljörðum króna, samanborið við 10,2 ma.kr. á sama tíma í fyrra. Var vöxturinn milli ára 245% eða nær 30,1 milljarðar króna. Aukningin í útflutningstekjum hagkerfisins alls nam 20 milljörðum króna á sama tíma og því hefði mælst samdráttur ef vöxtur í útflutningi gagnavera og tengdrar starfsemi hefði ekki komið til. Vægi greinarinnar var 3,6% af útflutningstekjum Íslands á fyrri hluta þessa árs.
- Horfur á 72 milljarða útflutningstekjum í ár. Horfur eru á að útflutningstekjur gagnavera og tengdrar starfsemi verði um 72 milljarðar króna í ár samanborið við 41,4 milljarða króna í fyrra. Aukningin milli ára er 74% eða tæplega 31 milljarður króna.
- 57 milljarða fjárfesting áætluð í ár. Áætlað er að fjárfestingar gagnaveranna muni nema 56,7 milljörðum króna í ár sem er nær tvöföldun frá síðasta ári þegar þær voru tæplega 29 milljarðar króna. Reikna má með að fjárfestingar greinarinnar verði um 6% af heildarfjárfestingum atvinnuveganna í ár. Fjárfestingarnar í greininni hafa verið miklar á síðustu árum. Þessum fjárfestingum hefur fylgt mikill fjöldi starfa og uppbygging á þekkingu sem mun nýtast íslensku efnahagslífi til framtíðar. Fjárfestingunum hefur einnig fylgt innflæði gjaldeyris þar sem erlendir fjárfestar þeirra fjármagna framkvæmdir hér á landi.
- 1.540 starfandi. Um 1.540 manns voru starfandi í gagnaverum og tengdri starfsemi um mitt þetta ár. Störfin í greininni hafa ríflega þrefaldast síðan 2022. Um er að ræða vel launuð háframleiðnistörf. Því til viðbótar koma fjölmargir að uppbyggingu gagnaveranna þ.m.t. mörg hundruð iðnaðarmenn og verktakar.
- Uppbyggingin dreifist um landið. Á Íslandi starfa þrjú stór gagnaver með fimm starfsstöðvar víða um land. Starfsstöðvar eru á Blönduósi, Akureyri, í Reykjanesbæ og á höfuðborgarsvæðinu. Þessu til viðbótar er tengd starfsemi með starfsstöðvar víða um landið.
- Raforka forsenda starfseminnar. Gagnaver notuðu 301 GWh af raforku á fyrri árshelmingi 2026 en það jafngildir um 70 MW. Það er 3,7% af heildarnotkun raforku hér á landi og 4,8% af samanlagðri notkun stórnotenda raforku, þ.e. gagnavera og málmframleiðslu. Endurnýjanleg raforka er einn af kostum íslenskrar gagnaversstarfsemi og svalt loftslag getur dregið úr orkuþörf kælingar. Upplýsingar gagnaveranna sýna að starfsstöðvarnar státa af orkunýtnistuðli (e. PUE - Power Usage Effectiveness) sem er með því lægsta sem gerist um allan heim. Fyrir alþjóðleg fyrirtæki sem gera kröfur um kolefnisspor gagnavinnslu er þetta veigamikill kostur.
Þrjú fyrirtæki með fimm starfsstöðvar
Á Íslandi starfa þrjú stór alþjóðleg gagnaver: Verne, atNorth (áður Advania Data Centers) og Borealis Data Center. Öll hafa þau byggt upp starfsemi víðar en á einum stað á landinu.
Verne var stofnað 2008. Höfuðstöðvar félagsins eru í London en stærsta gagnaver fyrirtækisins er á Íslandi, á Ásbrú í Reykjanesbæ. Fyrirtækið rekur gagnaver á Íslandi og í Finnlandi. Starfsmenn Verne eru yfir 180 manns og þar af starfa um 70 manns á Íslandi. Verne vinnur að frekari uppbyggingu á Íslandi meðal annars að nýju 120 MW gagnaveri í Reykjanesbæ sem mun skapa yfir 1.000 störf á hápunkti framkvæmda auk áframhaldandi uppbyggingar í Finnlandi, Noregi og Frakklandi.
atNorth var stofnað 2009. Höfuðstöðvar félagsins eru í Hafnarfirði. Fyrirtækið rekur sjö gagnaver á Norðurlöndum, þar af þrjú á Íslandi, í Hafnarfirði, Reykjanesbæ og á Akureyri. Starfsmenn atNorth á Norðurlöndunum eru yfir 400, þar af starfa yfir 150 á Íslandi. atNorth vinnur að frekari uppbyggingu í Danmörku, Finnlandi, Íslandi, Noregi og Svíþjóð.
Borealis Data Center var stofnað árið 2014. Félagið rekur gagnaver á þremur stöðum á Íslandi, á Blönduósi, á Fitjum í Reykjanesbæ og á Korputorgi í Reykjavík, auk gagnavers í Kajaani í Finnlandi. Starfsmenn Borealis á Íslandi eru um 60 talsins. Borealis vinnur nú að stækkun gagnaversins á Blönduósi og undirbýr frekari uppbyggingu á Íslandi og víðar.
Starfsemi gagnaveranna skapar tækni- og sérfræðistörf bæði á höfuðborgarsvæðinu og á landsbyggðinni.
Þegar talað er um tengd fyrirtæki þá er m.a. um að ræða fyrirtæki sem eiga búnað inni í íslensku gagnaverunum. Má þar nefna Crusoe, Nscale, Nebius og WhiteFiber sem eru fyrirtæki í þjónustu gervigreindar.
Útflutningstekjur hratt vaxandi
Gagnaversþjónusta á Íslandi er hratt vaxandi útflutningsgrein. Samkvæmt upplýsingum frá Hagstofu Íslands námu útflutningstekjur gagnaveranna og tengdrar starfsemi þeirra 35,2 milljörðum króna á fyrri hluta árs 2026 samanborið við 10,2 ma.kr. á sama tíma 2025. Aukningin milli ára er 30,1 ma.kr. eða 245%. Aukningin í útflutningstekjum hagkerfisins alls nam 20 milljörðum á sama tíma og því hefði mælst samdráttur ef vöxtur í útflutningi gagnavera og tengdrar starfsemi hefði ekki komið til. Vægi greinarinnar var 3,6% af útflutningstekjum Íslands á fyrri hluta þessa árs.
Horfur eru á að útflutningstekjur greinarinnar verði 72,2 ma.kr. á þessu ári samanborið við 41,4 ma.kr. í fyrra. Gangi sú áætlun eftir mun útflutningur greinarinnar vaxa um 74% á milli ára eða um tæplega 31 milljarð króna.
Það sem gerir útflutning gagnaveranna sérstakan er að honum fylgir enginn vöruflutningur. Þjónustu gagnavera má selja nánast hvert sem er í heiminum án hefðbundins flutningskostnaðar. Miklu ódýrara er að flytja gögn en að flytja orku, og þess vegna er skynsamlegt að staðsetja gagnavinnsluna nálægt orkugjöfunum sjálfum. Útflutningstekjurnar verða þannig til á Blönduósi, Akureyri og Reykjanesi og seljast á heimsmarkaði án hafna, flugvalla eða skipaflutninga.
Fjárfesting tvöfaldast á milli ára
Fjárfestingar gagnaveranna hafa verið umtalsverðar undanfarið. Ofangreind þrjú gagnaver áætla að fjárfestingar þeirra muni nema 56,7 milljörðum króna í ár sem er nær tvöföldun frá síðasta ári þegar þær voru tæplega 29 milljarðar króna. Reikna má með að fjárfestingar greinarinnar verði um 6% af heildarfjárfestingum atvinnuveganna í ár.
Fjárfestingarnar í greininni hafa verið miklar á síðustu árum. Þessum fjárfestingum hefur fylgt mikill fjöldi starfa og uppbygging á þekkingu sem mun nýtast íslensku efnahagslífi til framtíðar. Fjárfestingunum hefur einnig fylgt umtalsvert innflæði gjaldeyris sem farið hefur til að fjármagna framkvæmdir hér á landi. Hefur verulegt innflæði gjaldeyris m.a. verið til að fjármagna innflutning á tölvum og tölvubúnaði sem er í gagnaverunum. Sjást þær fjárfestingar vel í tölum Hagstofunnar um innflutning á tölvum og tölvubúnaði en hann var verulegur bæði í fyrra og í ár.
Umtalsverður fjöldi starfa
Um mitt þetta ár störfuðu um 280 manns beint hjá gagnaverunum þremur. Til viðbótar er áætlað að rekstur þeirra styðji við um 1.260 óbein störf, meðal annars hjá upplýsingatæknifyrirtækjum, verktökum og þjónustuaðilum sem sinna viðhaldi, tæknilegri þjónustu og rekstri húsnæðis gagnaveranna. Samanlagt eru þetta því um 1.540 bein og óbein störf á rekstrartíma. Það samsvarar um 4,5 óbeinum störfum fyrir hvert beint starf. Það hlutfall er sambærilegt við niðurstöður nýlegrar PwC-rannsóknar á gagnaverum í Bandaríkjunum, þar sem hvert beint starf styður við um 4,5 störf til viðbótar á rekstrartíma.[1] Heildarfjöldi beinna og óbeinna starfa hefur ríflega þrefaldast frá árinu 2022. Tölurnar ná ekki til tímabundinna starfa við uppbyggingu gagnaveranna. Um er að ræða störf sem flest eru vel launuð háframleiðnistörf.
Virðiskeðja gagnaveranna er fjölþætt. Gagnaverin kaupa fjölbreytta þjónustu og aðföng af innlendum fyrirtækjum, bæði í uppbyggingarfasa og í daglegum rekstri. Fjölmargir koma að uppbyggingu gagnaveranna þar sem mörg hundruð iðnaðarmenn og verktakar koma m.a. að hönnun og byggingu mannvirkjanna. Umfang uppbyggingar og reksturs gagnaveranna á innlendum vinnumarkaði er því meira en ofangreindar tölur segja.
Raforka er forsenda
Gagnaverin á Íslandi notuðu 301 GWh af raforku á fyrri árshelmingi 2026 en það jafngildir um 70 MW. Það er 3,7% af heildarnotkun raforku hér á landi og 4,8% af samanlagðri notkun stórnotenda raforku þ.e. gagnavera og málmframleiðslu. Endurnýjanleg raforka er einn af kostum íslenskrar gagnaversstarfsemi og svalt loftslag getur dregið úr orkuþörf kælingar. Upplýsingar gagnaveranna sýna að starfsstöðvarnar státa af orkunýtnistuðli (e. PUE - Power Usage Effectiveness) sem er með því lægsta sem gerist um allan heim.
Gagnaver geta selt hýsingu og reikniþjónustu til erlendra viðskiptavina með rafrænum gagnaflutningi. Þannig geta staðbundin orka, innviðir og sérþekking nýst til útflutnings án hefðbundinna vörusendinga vegna þjónustunnar sjálfrar. Starfsemin krefst þó innflutnings búnaðar og traustra fjarskiptatenginga. Hentug staðsetning gagnavera ræðst meðal annars af orkukostnaði, gagnamagni, afhendingaröryggi og kröfum um svartíma.
PDF-útgáfa af greiningunni.



