Gagnaver á Íslandi renna styrkari stoðum undir útflutningstekjur hagkerfisins

Rætt er við Ingólf Bender, aðalhagfræðing SI, í Morgunblaðinu um mikinn vöxt útflutningstekna gagnavera á Íslandi.

Ingólfur Bender

„Þessi iðnaður er að renna styrkari stoðum undir útflutningstekjur hagkerfisins en hafa ber í huga að tekjur gagnaveranna ættu að vera stöðugri en t.d. tekjur sjávarútvegsins og ferðaþjónustunnar svo að þessi útflutningsstoð eykur á stöðugleika og er kærkomin viðbót,“ segir Ingólfur Bender, aðalhagfræðingur SI, í frétt Ásgeirs Ingvarssonar í Morgunblaðinu um mikinn vöxt útflutningstekna gagnavera á Íslandi líkt og kemur fram í nýrri greiningu SI.

Í fréttinni kemur fram að greining SI sýni að fjöldi nýrra starfa hafi orðið til í kringum gagnaverin. „Bæði verða þessi störf til í kringum sjálfa uppbyggingu gagnaveranna en líka eftir að þau hefja starfsemi og er þá um að ræða hálaunastörf með mikla framleiðni. Það sem meira er, þá dreifist starfsemi gagnaveranna um landið og störfin verða því til í ólíkum landsfjórðungum.“ Þá segir hann það mjög jákvætt að ávinningurinn af fjárfestingu í gagnaverum sé að koma mjög hratt fram, útflutningstekjurnar komi nánast um leið og umsvifin skapi strax störf og skatttekjur. Hann segir einnig að á Íslandi virðist flestallir hæstánægðir með þessa starfsemi, „við höfum ekkert heyrt nema jákvæð viðbrögð frá sveitarstjórnum og almenningi á þeim stöðum þar sem gagnaverin hafa risið.“

Morgunblaðið / mbl.is, 23. október 2026.

Gagnaver
Gagnaver