Þorsteinn Víglundsson, formaður Samtaka iðnaðarins, er gestur í hlaðvarpsþættinum Chess After Dark ásamt Andra Steini Hilmarssyni, bæjarfulltrúa í Kópavogi, þar sem rætt er meðal annars um húsnæðismarkaðinn, efnahagsmál, vinnumarkaðinn, stöðu iðnaðarins, orkumál og samkeppnishæfni Íslands.
Þorsteinn segir meðal annars mikilvægt að menntakerfið geti tekið við þeim aukna fjölda nemenda sem nú sækir í iðnnám. Hann segir að lengi hafi verið unnið að því að auka áhuga ungs fólks á iðngreinum og að það starf sé nú farið að skila árangri. Það sé því sérstök staða að ekki sé hægt að taka við nemendum vegna þess að iðnnám sé kostnaðarsamara en bóknám. „Það tók mjög langan tíma að fá krakkana til þess að koma af auknum krafti inn í þetta nám og núna þegar þau eru að sækja það þá erum við að senda þau aftur í bóknám af því að við tímum ekki að borga kostnaðinn.“ Iðnnám krefjist tækjabúnaðar til þjálfunar og að þetta sé „þekkingin sem við þurfum“. Þorsteinn segir að takist ekki að ná utan um þetta geti þetta orðið verulegt vandamál fyrir okkur næstu 10-15 árin.
Á Spotify er hægt að nálgast þáttinn.



