Opnað fyrir tilnefningar til menntaverðlauna

Frestur til að skila inn tilnefningu til Menntaverðlauna atvinnulífsins er til 16. janúar.

Opnað fyrir tilnefningar til menntaverðlauna

Opnað hefur verið fyrir tilnefningar til Menntaverðlaun atvinnulífsins sem verða afhent á Menntadegi atvinnulífsins á Hilton Reykjavík Nordica 11. febrúar 2026. Óskað er eftir tilnefningum um fyrirtæki sem hafa staðið sig vel á sviði fræðslu- og menntamála. Tilnefningar berist eigi síðar en föstudaginn 16. janúar.

- Fyrirtækjum er velkomið að tilnefna sig sjálf.
- Einungis er hægt að tilnefna aðildarfélaga innan SA.

Verðlaun eru sem fyrr veitt í tveimur flokkum, menntafyrirtæki ársins og menntasproti ársins.

Menntafyrirtæki ársins 2026 Við mat á umsóknum er lögð sérstök áhersla á íslenskt framlag við þróun, aðlögun og innleiðingu verkefna, sem og hvernig fræðslan innan fyrirtækja mætir þörfum íslensks vinnumarkaðar. Einnig er tekið tillit til verkefna sem byggja á alþjóðlegri fræðslu, að því gefnu að framlag Íslendinga til þróunar, aðlögunar og innleiðingar sé skýrt og að verkefnið styðji við þarfir vinnumarkaðarins hér á landi.

· Stefna og framtíðarsýn fyrirtækisins í fræðslumálum

· Aðgengi og þátttaka starfsfólks í fræðslu

· Fræðsluleiðir

· Mat á árnagri

Menntasproti ársins 2026 Leitað er eftir verkefnum sem stuðla að nýsköpun í fræðslu sem styrkir starfsfólk og fyrirtæki á íslenskum vinnumarkaði.

· Nýsköpun og þróun

· Aðgengi og fjölbreytt notkun

· Framtíðarsýn og áhrif

Nánari útlistun viðmiða er að finna í tilnefningarforminu

Tilnefnið hér

Menntadagur atvinnulífsins er sameiginlegt verkefni SA, SI, SVÞ, SAF, SFS, SFF og Samorku.

Opnað fyrir tilnefningar til menntaverðlauna - Samtök Iðnaðarins