Óskað eftir tilnefningum fyrir menntaverðlaun

Hægt er að senda inn tilnefningar fyrir Menntaverðlaun atvinnulífsins fyrir 18. desember næstkomandi.

Óskað eftir tilnefningum fyrir menntaverðlaun

Óskað er eftir tilnefningum fyrir Menntaverðlaun atvinnulífsins sem verða afhent í Hörpu á næsta ári, nánar tiltekið á Menntadegi atvinnuífsins fimmtudaginn 14. febrúar. Óskað er eftir tilnefningum um fyrirtæki sem hafa staðið sig vel á sviði fræðslu- og menntamála. Tilnefningar er hægt að senda í tölvupósti til Samtaka atvinnulífsins á sa@sa.is fyrir þriðjudaginn 18. desember næstkomandi.

Þetta er í sjötta sinn sem dagurinn er haldinn en um er að ræða samstarfsverkefni Samtaka iðnaðarins, Samorku, Samtaka ferðaþjónustunnar, Samtaka fjármálafyrirtækja, Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, Samtaka verslunar og þjónustu og Samtaka atvinnulífsins. Iceland Travel var valið menntafyrirtæki ársins 2018 og Landsnet menntasproti ársins 2018.

Verðlaun eru veitt í tveimur flokkum; menntafyrirtæki ársins og menntasproti ársins.

Helstu viðmið fyrir menntafyrirtæki ársins eru:

  • að skipulögð fræðsla sé innan fyrirtækisins,
  • að stuðlað sé að markvissri menntun og fræðslu,
  • að sem flest starfsfólk taki virkan þátt og
  • að hvatning sé til frekari þekkingaröflunar.

Helstu viðmið vegna menntasprota ársins eru:

  • að lögð sé stund á nýsköpun í menntun og fræðslu, innan fyrirtækis og/eða í samstarfi fyrirtækja,
  • samstarf fyrirtækja og samfélags um eflingu fræðslu, innan sem utan fyrirtækja.
nm91232-sa-menntaverdlaun-2019.jpg

Óskað eftir tilnefningum fyrir menntaverðlaun - Samtök Iðnaðarins