Óvissa um heimildir sveitarfélaga til að innheimta

Rætt er við Jóhönnu Klöru Stefánsdóttur, sviðsstjóra mannvirkjasviðs SI, um sýknudóm Hæstaréttar um innviðagjald Reykjavíkurborgar.

Mikil tækifæri til að stytta skipulagsferli

Rætt er við Jó­hönnu Klöru Stef­áns­dótt­ur, sviðsstjóra mann­virkja­sviðs SI, á mbl.is þar sem hún seg­ir sýknu­dóm Hæsta­rétt­ar gera það að verk­um að óvissa ríki um heim­ild­ir sveit­ar­fé­laga til að inn­heimta gjöld á borð við innviðagjald. „Við fór­um af stað á sín­um tíma með ákveðin álit sem bentu til þess að laga­leg óvissa ríkti um þessi mál. Hags­mun­irn­ir snú­ast um meira en inn­heimtu þessa innviðagjalds, þetta snýr að heim­ild­um sveit­ar­fé­laga til að inn­heimta allskon­ar svona gjöld, á þess­um for­send­um. Það var á bratt­an að sækja eft­ir niður­stöðu Lands­rétt­ar en þetta var þannig mál, að við þurft­um að fara með það alla leið.“ Hún segir á mbl.is að nú sitji verk­tak­ar hins veg­ar uppi með þá niður­stöðu að heim­ild sé fyr­ir gjöld­un­um, sem hafi gríðarlegt for­dæm­is­gildi og skilji verk­taka eft­ir í óvissu um heim­ild­ir sveit­ar­fé­laga í þess­um mál­um yf­ir­höfuð.

Ekki ljóst hvernig gjöld sveitarfélög geta innheimt í framtíðinni

Þegar blaðamaður mbl.is spyr Jóhönnu Klöru hvort ein­hver atriði séu orðin skýr­ari eft­ir dóm­inn svarar hún: „Þeim er eins og í þessu til­viki veitt heim­ild til þess að fara í einkarrétt­ar­lega samn­inga með inn­heimtu gjalda og það er þá raun­veru­lega ekki ljóst hvar eða hvernig gjöld er þá hægt að taka upp á að inn­heimta í framtíðinni, í tengsl­um við þetta. Þess vegna líka fögn­um við því í millitíðinni að það er átaks­hóp­ur í hús­næðismál­um sem skilaði fyr­ir þjóðhags­ráð nýrri skýrslu núna í maí og þar er ein­mnitt sér­stak­lega kveðið á um það að það þurfi að skoða hvort skýra þurfi inn­heimtu þessarra gjalda með bættri laga­setn­ingu. Við telj­um það vera staðfest­ingu á því að þetta er ekki boðlegt fyr­ir iðnaðinn að vera í þess­ari óvissu. Núna tek­ur við það sama, ástæða þess að við fór­um í þetta mál er að þetta snýr ekki aðeins að Reykja­vík held­ur öðrum sveit­ar­fé­lög­um líka. Núna stönd­um við eft­ir með fleiri spurn­ing­ar um fram­haldið og hvernig sveit­ar­fé­lög­in muni þróa þess­ar inn­heimtuaðferðir til framtíðar. Það er auðvitað eitt­hvað sem við verðum að skoða.“

mbl.is, 3. júní 2022.

Óvissa um heimildir sveitarfélaga til að innheimta - Samtök Iðnaðarins