Rafrænn fundur um framtíðarráðgjafann

Yngri ráðgjafar standa fyrir rafrænum fundi um framtíðarráðgjafann.

Rafrænn fundur um framtíðarráðgjafann

Yngri ráðgjafar, sem er deild innan Félags ráðgjafarverkfræðinga, stendur fyrir rafrænum fundi þriðjudaginn 18. maí kl. 9.00-10.00 með yfirskriftinni Framtíðarráðgjafinn - tækifæri og áskoranir. Á fundinum velta Yngri ráðgjafar fyrir sér hvernig starf ráðgjafans muni breytast á næstu árum, m.a. í tengslum við starfsumhverfi, loftslagsbreytingar og tækniþróun ásamt því að bjóða til viðræðna reyndu fólki úr atvinnulífinu.

Hér er hægt að fylgjast með viðburðinum: https://us02web.zoom.us/j/82545853044

Fundarstjóri er Jóhanna Klara Stefánsdóttir, sviðsstjóri mannvirkjasviðs SI.

Dagskrá

  • Starfsumhverfi ráðgjafans – Sandra Rán Ásgrímsdóttir, sjálfbærniverkfræðingur hjá Mannvit og formaður YR
  • Loftslagsbreytingar – Sigríður Ósk Bjarnadóttir, byggingarverkfræðingur, Ph.D., sérfræðingur í sjálfbærni og loftslagsmálum í mannvirkjahönnun hjá VSÓ ráðgjöf og stjórnarmaður í YR
  • Tækniþróun – Hjörtur Sigurðsson, framkvæmdastjóri VSB verkfræðistofu, stjórnarmaður í FRV og fyrrverandi stjórnarmaður í YR

Pallborðsumræður:

  • Arnar Kári Hallgrímsson, byggingarverkfræðingur hjá Eflu og fyrrverandi formaður YR
  • Egill Viðarsson, sviðsstjóri á sviði samgangna og umhverfis hjá Verkís
  • Guðrún Ingvarsdóttir, forstjóri Framkvæmdasýslu ríkisins
  • Jóhannes B. Bjarnason, verkefnastjóri hjá Isavia
fundur-18-mai-2021.png


Rafrænn fundur um framtíðarráðgjafann - Samtök Iðnaðarins