Umhverfis- og auðlindaráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um styrki til verkefna sem stuðla að eflingu hringrásarhagkerfis á Íslandi. Umsóknarfrestur er til 30. apríl næstkomandi. Gert er ráð fyrir að styrkir verði veittir til afmarkaðra verkefna og verða þeir almennt veittir til eins árs í senn. Reynist verktíminn vera lengri er þó heimilt að veita árlegan styrk til allt að þriggja ára með fyrirvara um fjárveitingar á fjárlögum. Heildarstyrkupphæð er 230 milljónir króna. Hver einstakur styrkur mun almennt ekki nema hærri fjárhæð en 10% af heildarfjárheimild ársins. Umsækjendur sækja um á rafrænu formi á eyðublaðavef Stjórnarráðsins. Hægt er að skrá sig inn með rafrænum skilríkjum eða Íslykli frá Þjóðskrá og finna þar viðeigandi eyðublað undir umhverfis- og auðlindaráðuneyti. Á vef Stjórnarráðsins er hægt að nálgast frekari upplýsingar um markmið með styrkveitingunum. Hér er hægt að nálgast reglur um styrkveitingarnar. Fyrir frekari upplýsingar er hægt að hafa samband við Hafstein Pálsson, verkfræðing í umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, s. 545-8600, hafsteinn.palsson@uar.is.
Styrkir til að efla íslenskt hringrásarhagkerfi
Styrkir til að efla íslenskt hringrásarhagkerfi
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um styrki til eflingar hringrásarhagkerfis á Íslandi.

SI leggja áherslu á óhindraðan aðgang að innri markaðnum og mótvægisaðgerðir vegna CBAM
Í umsögn SI um drög að frumvarpi til laga um aðlögunarkerfi við landamæri vegna kolefnis, CBAM, hvetja samtökin stjórnvöld til að vera virk í hagsmunagæslu sinni gagnvart ESB.

Það er að teiknast upp mjög kaldur vetur
Rætt er við Þorstein Víglundsson, formann SI, í Kastljósinu um byggingariðnað og stöðu efnahagsmála.

Stjórn Samtaka rafverktaka heimsækir Norðurál
Framkvæmdastjóri og starfsfólk Norðuráls tóku á móti stjórn Samtaka rafverktaka fyrir skömmu.
