Ljósmyndararnir Regína Rist og Víkingur Magnússon voru í hópi 90 nýsveina í níu iðn- og verkgreinum sem fengu réttindi sín við hátíðlega athöfn á Hótel Nordica 17. nóvember sl.
Guðmundur Skúli Viðarsson og Rakel Ósk Sigurðardóttir hjá Ljósmyndarafélagi Íslands afhentu sveinsbréfin ásamt blómum og bókagjöf. Nýsveinar í ljósmyndun fá einnig fría aðild að Ljósmyndarafélagi Íslands í eitt ár.
Á vef Ljósmyndarafélags Íslands er hægt að nálgast fleiri myndir.
Mynd/Gunnar Leifur Jónasson.




