„Auðvitað eru það vonbrigði að Seðlabankinn telji sig ekki vera í stöðu til þess að lækka vexti, af því að þetta hefur mjög alvarleg áhrif á iðnaðinn og ekki síst byggingariðnaðinn,“ segir Ingólfur Bender, aðalhagfræðingur SI, meðal annars í forsíðufrétt Morgunblaðsins um erfiða stöðu í byggingariðnaði. „Þar erum við að sjá vaxandi vandræði, en í þessu umhverfi hárra vaxta brennur eigið fé fyrirtækja sem eru með mikinn fjölda óseldra íbúða upp mjög hratt. Þar eru aðilar að lenda í fjárhagslegum erfiðleikum.“
Þegar Ingólfur er spurður hvað iðnaðurinn þolir þetta ástand mikið lengur svarar hann: „Einstaka aðilar innan geirans eru nú þegar í vandræðum og við sjáum að fjöldi uppsagna í greininni er að aukast og störfum að fækka. Þeir sem starfa í byggingariðnaði og mannvirkjagerð voru í september síðastliðnum um 520 færri en í sama mánuði árið áður. Fækkun starfandi í byggingariðnaði skýrir um þriðjung allrar fækkunar starfa á almenna vinnumarkaðinum í hagkerfinu öllu. Atvinnulausum í greininni fjölgaði á sama tíma um 34%. Þannig að ástandið kemur niður á landsmönnum, m.a. með þessum hætti. Síðan er spurning hvenær við sjáum fleiri fréttir um verktaka sem eru að lenda í vandræðum.“
Morgunblaðið / mbl.is, 20. nóvember 2026.




