Fréttasafn



29. jún. 2023 Almennar fréttir Iðnaður og hugverk Samband íslenskra kvikmyndaframleiðenda

Átta ný fyrirtæki ganga í SÍK

Átta kvikmyndaframleiðendur hafa gengið til liðs við Samband íslenskra kvikmyndaframleiðenda, SÍK, sem ber vott um þá miklu grósku sem er í íslenskri kvikmyndagerð. Eftir inngöngu þeirra eru því nú 39 fyrirtæki aðilar að SÍK.

Ný stjórn var kosin á aðalfundi SÍK sem haldinn var í Húsi atvinnulífsins fyrir skömmu. Í nýrri stjórn SÍK sitja Anton Máni Svansson hjá Join Motion Pictures sem er jafnframt formaður SÍK, Hilmar Sigurðsson hjá GunHil, Kristinn Þórðarson hjá Black Cliff Productions, Agnes Johansen hjá RVK Studios, Hanna Björk Valsdóttir hjá Akkeri Films, Inga Lind Karlsdóttir hjá Skot Productions og Heather Millard hjá Compass Films.

Á fundinum var því jafnframt fagnað að 10 ár eru liðin frá aðild SÍK að Samtökum iðnaðarins,SI, og var af því tilefni undirritað nýtt samkomulag SÍK og SI.

Anton Máni Svansson, formaður SÍK: „Samstarf okkar og SI verður sterkara með hverju árinu. Ég er spenntur fyrir áframhaldandi uppbyggingu atvinnugreinar okkar í samvinnu við samtökin. Framundan er fjöldinn allur af mikilvægum og krefjandi verkefnum sem ég er bjartsýnn á að við munum leysa vel af hendi þar sem samstaða kvikmyndaframleiðenda hefur sjaldan verið jafn sterk og nú. Ég tel mikinn feng í því að fá þær Agnesi Johansen, Hönnu Björk Valsdóttur og Heather Millard inn í stjórn SÍK. Á sama tíma vil ég þakka Hlín Jóhannesdóttur, Guðbergi Davíðssyni og Júlíusi Kemp fyrir þeirra mikilvæga framlag og mjög ánægjulegt samstarf.“

Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI: „Það hefur verið ánægjulegt að fylgjast með íslenskum kvikmyndaiðnaði vaxa og dafna á undanförnum árum. Samstarf og samvinna Samtaka iðnaðarins og SÍK hefur gengið vel á síðastliðnum áratug og fögnum við því að fá inn enn fleiri félagsmenn í kvikmyndaiðnaði á þessum tímamótum þegar áratugur er liðinn frá aðild SÍK að SI.“

Myndir/BIG

RVK Studios er meðal þeirra fyrirtækja sem hafa gengið til liðs við SÍK. Á myndinni eru, talið frá vinstri, Anton Máni Svansson hjá Join Motion Pictures og formaður SÍK, Agnes Johansen hjá RVK Studios, Baltasar Kormákur hjá RVK Studios, Lilja Björk Guðmundsdóttir hjá SI og Sigurður Hannesson hjá SI.

Mynd-2_1688034346220Ný stjórn SÍK ásamt viðskiptastjóra SÍK hjá SI, talið frá vinstri, Inga Linda Karlsdóttir hjá Skot Productions, Lilja Björk Guðmundsdóttir hjá SI, Anton Máni Svansson hjá Join Motion Pictures, Agnes Johansen hjá RVK Studios, Hilmar Sigurðsson hjá GunHil, Heather Millard hjá Compass Films og Hanna Björk Valsdóttir hjá Akkeri Films.



mbl.is, 29. júní 2023.