Beint streymi frá fundi um tölvuleikjaiðnaðinn
Beint streymi er frá fundi Samtaka leikjaframleiðenda, IGI, og Samtaka iðnaðarins í Grósku um stöðu tölvuleikjaiðnaðar ásamt framtíðarhorfum og tækifærum í tengslum við uppbyggingu hans. Kynntar verða nýjar tölur um fjölda starfa, fjárfestingar og veltu í tölvuleikjaiðnaði og dregin upp sviðsmynd af íslenskum leikjaiðnaði árið 2030. Að loknu erindi formanns IGI verða pallborðsumræður um tækifæri og áskoranir leikjaiðnaðarins. Hér er hægt að horfa á streymið.
Dagskrá
Staða og framtíðarhorfur íslensks leikjaiðnaðar
Vignir Örn Guðmundsson, formaður IGI
Pallborðsumræður
Hilmar Veigar Pétursson - forstjóri CCP
Sigurlína Ingvarsdóttir - framleiðandi hjá Bonfire Studios
Þorgeir F. Óðinsson – framkvæmdastjóri Directive Games
María Guðmundsdóttir – forstjóri Parity