Fundur um stöðuna á íbúðamarkaðnum
Félag viðskiptafræðinga og hagfræðinga, FVH, efnir til hádegisverðarfundar í samstarfi við Samtök iðnaðarins um stöðuna á fasteignamarkaði miðvikudaginn 2. október á Hilton Nordica kl. 12:00-13:15.
Dagskrá
- Ingólfur Bender, aðalhagfræðingur SI, fjallar um nýlega talningu á íbúðum í byggingu og stöðuna á íbúðamarkaðnum.
- Sigrún Ásta Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri greininga- og áætlanasviðs Íbúðalánasjóðs, fer yfir framboð og eftirspurn eftir fasteignum á höfuðborgarsvæðinu.
- Ingólfur og Sigrún taka þátt í umræðum með fundarstjóra eftir að erindum þeirra lýkur.
Fundarstjóri er Ásdís Kristjánsdóttir, forstöðumaður efnahagssviðs Samtaka atvinnulífsins og stjórnarmaður í FVH.
Viðburðurinn á Facebook.
Hér er hægt að skrá sig. Skráning er mikilvæg.