Fréttasafn



27. mar. 2026 Almennar fréttir Mannvirki Menntun Samtök rafverktaka

Gengur of hægt að fá fleiri konur í rafiðnaðarstörf

Ingibjörg Lilja Þórmundsdóttir, stjórnarformaður Rafals, sagði í Bítinu á Bylgjunni að þróunin væri allt of hæg að fá fleiri konur í rafiðnaðarstörf en hún tók þátt í ráðstefnu Samtaka rafverktaka um Konur í rafiðnaði sem fór fram í byrjun mars. Ingibjörg sagði rafvirkjun henta konum vel og að störf í iðnaði væru meðal þeirra sem gervigreindin væri ólíklegust til að taka yfir á næstu árum. Hún sagði vinnustaði verða betri þegar kynjahlutföll væru jafnari og að fjölbreyttari hópur starfsfólks hefði jákvæð áhrif á menningu og stemningu innan fyrirtækja. 

Ingibjörg sagði ýmis átök og vitundarvakningu hafa verið í gangi undanfarin ár til að hvetja fleiri konur í iðngreinar. Hún nefndi bæði herferðir fyrirtækja og kynningarstarf skóla. Að hennar mati liggur vandinn þó dýpra. Hún sagði hann oft byrja inni á heimilunum, þar sem foreldrar væru ekki nógu duglegir að hvetja börn sín, sérstaklega stelpur, í iðnnám. „Það er ennþá þessi lenska að við þurfum einhvern veginn að klára stúdentsprófið og svo þurfa allir að fara í háskóla.“ Ingibjörg sagði iðngreinar einnig hafa þann kost að bjóða upp á sterkt atvinnuöryggi til framtíðar. „Það eru störf í iðnaðinum sem munu síðast hverfa með tilkomu gervigreindarinnar.“  Hún bætti við að rafvirkjar gætu svo síðar bætt við sig námi, til dæmis í tæknifræði, og þannig opnast enn fleiri leiðir.

Á vef Vísis er hægt að hlusta á viðtalið í heild sinni.

Bítið á Bylgjunni, 27. mars 2026.