Hagvaxtarhorfur hafa versnað umtalsvert að mati stjórnenda
Niðurstöður nýrrar könnunar Maskínu meðal stjórnenda í fyrirtækjum og stofnunum sýna mikinn viðsnúning í efnahagshorfum litið til næstu tólf mánaða frá því að meirihluti stjórnenda vænti vaxtar í hagkerfinu yfir í að meirihluti stjórnenda væntir nú samdráttar.
46% stjórnenda í íslensku atvinnulífi telja að hagkerfið muni dragast saman á næstu tólf mánuðum samkvæmt niðurstöðum könnunarinnar. Það er mikil aukning frá síðustu könnun sem framkvæmd var í maí þegar einungis 18% stjórnenda töldu að hagkerfið muni dragast saman.
Hlutfall þeirra sem telja að hagkerfið muni vaxa mælist nú 26% en var 56% í maí síðastliðnum.
Mun stærri hluti stjórnenda telja nú að hagkerfið muni dragast saman á næstu tólf mánuðum (46%) en þeir sem telja að það muni vaxa (26%). Um er að ræða algeran viðsnúning frá því í maí þegar talsvert stærri hluti stjórnenda taldi að það myndi vaxa (56%) en dragast saman (18%).
Kannanirnar voru framkvæmdar af Maskínu fyrir Samtök iðnaðarins meðal stjórnenda í fyrirtækjum og stofnunum í nóvember, í maí og í desember.

mbl.is, 18. nóvember 2025.
RÚV, 18. nóvember 2025.
Vísir, 18. nóvember 2025.
Viðskiptablaðið, 18. nóvember 2025.

