Fréttasafn



17. sep. 2019 Almennar fréttir

Hvatningarverðlaun Vísinda- og tækniráðs

Vísinda- og tækniráð hefur auglýst eftir tilnefningum fyrir Hvatningarverðlaun ráðsins sem eru veitt vísindamanni sem snemma á ferlinum þykir hafa skarað framúr og skapað væntingar um framlag í vísindastarfi sem treystir stoðir mannlífs á Íslandi. Verðlaunin eru 3 milljónir króna. Frestur til að skila inn tilnefningum er til og með 11. október næstkomandi.

Tilnefna má vísindafólk sem starfar á Íslandi við háskóla, rannsóknastofnanir, fyrirtæki eða er sjálfstætt starfandi. Öllum, sem eru í aðstöðu til að meta störf einstakra vísindamanna, er heimilt að senda tilnefningar og þarf ferilskrá vísindamannsins að fylgja. Almennt er miðað við að þeir sem koma til álita séu ekki eldri en 40 ára en þó er tekið fullt tillit til tafa sem kunna að verða á ferli vísindamannsins vegna umönnunar barna.

Tilnefningar á að senda á rannis@rannis.is merkt Hvatningarverðlaun 2019. Á vef Rannís er hægt að nálgast frekari upplýsingar um verðlaunin.