Fréttasafn



23. nóv. 2018 Almennar fréttir

Ísbjarnarhöfuð fær Skúlaverðlaunin

Guðný Hafsteinsdóttir, keramiker og hönnuður, sem hannar undir merkinu Gudnyhaf hlaut Skúlaverðlaunin fyrir tappa í flöskur sem kallast Beware og eru ísbjarnarhöfuð úr steyptu postulíni. Verðlaunin voru afhent í gær í lok opnunardags sýningarinnar Handverk og hönnun sem stendur yfir í Ráðhúsi Reykjavíkur fram á mánudag. Það var Guðrún Birna Jörgensen, viðskiptastjóri hjá Samtökum iðnaðarins, sem afhenti verðlaunin en þau eru styrkt af Samtökum iðnaðarins. 

Fyrsti tappinn sem Gudnyhaf gerði var jólakötturinn sem er búinn að vera í sölu undanfarin tvö ár bæði hér heima og í Danmörku og hefur verið vel tekið. Ísbjörninn er alveg nýr og er til í ýmsum litum eins og kötturinn. Um hugmyndina að Beware segir Guðný: „Hugmyndin að baki var að gera dýr sem eiga það sameiginlegt að vera ógnvænleg en er einnig ætlað að höfða tilfinningalega til fólks.“ 

Þátttakendur á sýningunni eru 56 talsins og bárust tæplega 20 tillögur í samkeppnina. Þeir sem valdir voru til þátttöku í sýningunni gátu tilkynnt um nýja vöru í samkeppni um besta nýja hlutinn. Skilyrðin fyrir innsendingar voru að hlutirnir máttu hvorki hafa verið til sýnis né sölu opinberlega fyrir sýninguna í Ráðhúsinu. Dómnefndina skipuðu Kristín Sigfríður Garðarsdóttir, keramikhönnuður, og Elísabet Jónsdóttir, grafískur hönnuður.

Verðlaunin eru kennd við Skúla Magnússon, fógeta, sem er frumkvöðull smáiðnaðar í Reykjavík. 

Skulaverdlaun-2018Guðný Hafsteinsdóttir, Sunneva Hafsteinsdóttir og Guðrún Birna Jörgensen. 

Skulaverdlaun-2018-Handverk-og-honnun60488Ísbjarnarhöfuðin sem voru verðlaunuð.