Fréttasafn



4. feb. 2026 Almennar fréttir Mannvirki

Kraftmikill og vel sóttur fundur SI og VR um húsnæðismál

SI og VR stóðu fyrir vel sóttum fundi um húsnæðismál á Hótel Reykjavík Grand í gær undir yfirskriftinni Samstaða um úrbætur í húsnæðismálum. Í kraftmiklum umræðum fundarins kom fram að húsnæðismál væru eitt stærsta úrlausnarefni samfélagsins í dag. Hátt húsnæðisverð, skortur á langtímasýn og flókið ferli hafi áhrif á heimili, atvinnulíf og framtíðarþróun samfélagsins. Á fundinum var sjónum beint að því hvað þurfi að breytast til að tryggja öruggt húsnæði og hvað þurfi til að hægt verði að komast frá orðum til athafna.

Fundurinn hófst á því að Sigurður Hannesson, framkvæmdstjóri SI, flutti setningarávarp og Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, flutti erindi um húsnæðismál frá sjónarhóli launafólks. Þorgils Helgason, viðskiptastjóri á mannvirkjasviði SI, sá um fundarstjórnina. Eftirtalin fluttu erindi: Kristín Amalía Líndal, hagfræðingur hjá HMS, greindi frá stöðu húsnæðismála í upphafi árs. Ingólfur Bender, aðalhagfræðingur SI, fór yfir gjaldtökuheimildir sveitarfélaga við uppbyggingu húsnæðis. Karl Þráinsson, framkvæmdastjóri Framkvæmdafélagsins Arnarhvols, greindi frá reynslu af vettvangi og fór yfir hvað tefur framkvæmdir. Sigurður Stefánsson, framkvæmdastjóri Aflvaka þróunarfélags, fjallaði um áhrif öldrunar þjóðarinnar á húsnæðisþörf samfélagsins. 

Í seinni hluta fundarins var efnt til pallborðsumræðna þar sem Sigurður og Halla stýrðu umræðunum og spurðu viðmælendur meðal annars um hvað þyrfti að gerast til að breyta stöðunni í húsnæðismálum. Þátttakendur í umræðunum voru Saga Guðmundsdóttir, aðalhagfræðingur Sambands íslenskra sveitarfélaga, Gylfi Gíslason, framkvæmdastjóri JÁVERKS, Björn Traustason, framkvæmdastjóri Bjargs íbúðafélags, og Arnhildur Pálmadóttir, arkitekt hjá s. ap arkitektum. Gefinn var kostur á spurningum úr sal.

Í lok fundarins flutti Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, ávarp. 

Hér er hægt að nálgast upptöku af fyrri hluta fundarins:

https://vimeo.com/1161714145?fl=pl&fe=sh

 

Hér er hægt að nálgast upptöku frá seinni hluta fundarins:

https://vimeo.com/1161712891?fl=tl&fe=ec

 

Myndir/BIG

Si_vr_fundur_um_husnaedismal_grand_a-1Sigurður Hannesson, framkvæmdstjóri SI.

Si_vr_fundur_um_husnaedismal_grand_a-3Halla Gunnarsdóttir, formaður VR.

Si_vr_fundur_um_husnaedismal_grand_a-5Þorgils Helgason, viðskiptastjóri á mannvirkjasviði SI.

Si_vr_fundur_um_husnaedismal_grand_a-9Kristín Amalía Líndal, hagfræðingur hjá HMS.

Si_vr_fundur_um_husnaedismal_grand_a-6Ingólfur Bender, aðalhagfræðingur SI. 

Si_vr_fundur_um_husnaedismal_grand_a-7Karl Þráinsson, framkvæmdastjóri Framkvæmdafélagsins Arnarhvols.

Si_vr_fundur_um_husnaedismal_grand_a-10Sigurður Stefánsson, framkvæmdastjóri Aflvaka þróunarfélags.

Si_vr_fundur_um_husnaedismal_grand_a-12Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI, Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, Saga Guðmundsdóttir, aðalhagfræðingur Sambands íslenskra sveitarfélaga, Gylfi Gíslason, framkvæmdastjóri JÁVERKS, Arnhildur Pálmadóttir, arkitekt hjá s. ap arkitektum, og Björn Traustason, framkvæmdastjóri Bjargs íbúðafélags.

Si_vr_fundur_um_husnaedismal_grand_a-14Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra. 

Si_vr_fundur_um_husnaedismal_grand_a-4

Si_vr_fundur_um_husnaedismal_grand_a-8

Si_vr_fundur_um_husnaedismal_grand_a-11

Si_vr_fundur_um_husnaedismal_grand_a-13


Umfjöllun

Sýn, 2. febrúar 2026.

mbl.is, 2. febrúar 2026.

Vísir, 3. febrúar 2026.


Auglýsing

Radstefna-heilsida8_loka