Lean Green - straumlínustjórnun umhverfismála
Manino og Samtök iðnaðarins efna til ráðstefnu um straumlínustjórnun og umhverfismál mánudaginn 23. janúar kl. 8.30-12.30 í Háskólanum í Reykjavík. Yfirskrift ráðstefnunnar er „Hvað eiga umhverfisstjórnun og straumlínustjórnun sameiginlegt?“ Í tengslum við ráðstefnuna verður haldin vinnustofa þar sem farið er ofan í saumana á því hvernig tengja má umhverfisstjórnun og straumlínustjórnun saman í fyrirtækjum og stofnunum og hvaða ávinningi má reikna með.
Fyrirlesarar á ráðstefnunni eru:
- Bryndís Skúladóttir, Samtökum iðnaðarins, fundastjóri
- Kelly Singer, Lean Green Institute
- Svanborg Guðjónsdóttir, University College of Northern Denmark (UCN)
- Búi Bjarmar Aðalsteinsson, BSF Production
- Magnús Þór Ásmundsson, Alcoa
- Hrönn Hrafnsdóttir, Reykjavíkurborg
- Pétur Arason, Manino
Skráning á ráðstefnuna er á vefsíðunni: http://www.manino.is/
Frekari upplýsingar er hægt að nálgast hjá lean@manino.is eða bryndis@si.is.