Fréttasafn



17. feb. 2022 Almennar fréttir Iðnaður og hugverk Ljósmyndarafélag Íslands

Norræn ljósmyndasýning í Hörpu í tilefni 95 ára afmælis

Laufey-Osk-Magnusdottir-formadur-Ljosmyndarafelags-IslandsLjósmyndarafélag Íslands varð 95 ára nýlega og einn hluti af hátíðarhöldum af tilefninu er samnorræn ljósmyndasýning í Hörpu sem opnar föstudaginn 18. febrúar kl. 16.30. Sýningin samanstendur af verðlaunamyndum frá Íslandi, Danmörku, Noregi, Svíþjóð og Finnlandi. Sýningin mun standa til 3. mars og er öllum opin. Þetta kemur fram í grein Laufeyjar Ósk Magnúsdóttur, ljósmyndara og formanns Ljósmyndarafélags Íslands, á Vísi. Hún segir í grein sinni að með tilkomu stafrænnar tækni í ljósmyndun í upphafi aldar sáu allir fyrir sér miklar breytingar framundan í faginu þó enginn hafi vitað hverjar þær breytingar yrðu nákvæmlega. „Eins og fylgir öllum breytingum komu upp áhyggjuraddir. Yrðu ljósmyndir mögulega minna virði þegar allir geta tekið myndir? Mun tæknin taka myndirnar fyrir okkur? Er þetta möguleg ógn við ljósmyndun sem starf? Í dag vitum við að tæknin er einmitt bara það, tæki fyrir okkur ljósmyndara að vinna með. Tækni til að einfalda okkur vinnuna að einhverju leyti sem gefur okkur enn meira rými til að skapa. Eða eins og fyrrum formaður Ljósmyndarafélags Íslands orðaði svo flott í viðtali um árið; það að eiga fiðlu gerir okkur ekki að fiðluleikara.“

Hún segir jafnframt í greininni að þegar ljósmyndasýningin verður opnuð þá verði við sama tilefni veitt verðlaun fyrir íslensku myndirnar. Ljósmyndarar, ýmist íslenskir eða búsettir á Íslandi, sendu inn myndir í fjóra flokka og það hafi verið frábær þátttaka. Ljósmyndarafélag Íslands fékk þrjá erlenda dómara sem lögðu mat á innsendar myndir. Stigahæsta mynd í hverjum flokki fær verðlaun. Fimm aðrar stigahæstu myndir óháð flokkum komust svo inn á sýninguna. Dómararnir þrír eru Tony Sweet frá Bandaríkjunum, Gabe McClintock frá Kanada og Line Loholt frá Noregi. Laufey Ósk segir að útkoman sé frábær sýning sem sé þverskurður af ljósmyndun á Íslandi síðustu misserin. „Framtíðin er björt í ljósmyndun og mörg verkefni framundan fyrir okkur sem fagfólk. Til dæmis að auka samheldni í stéttinni og auðvelda nýliðun. Stórt og öflugt félag starfandi ljósmyndara sem vinnur vel með yfirvöldum og skólum tel ég vera lykilatriði í því.“

Á Vísi er hægt að lesa greinina í heild sinni.