Ný ríkisstjórn styrki meistarakerfi löggiltra iðngreina
Formenn 24 fag- og meistarafélaga innan Samtaka iðnaðarins skrifa undir grein sem birt er á Vísi undir yfirskriftinni Ný ríkisstjórn styrki meistarakerfi löggiltra iðngreina. Í greininni segir að meistararéttindi liggi til grundvallar iðnrekstrar í okkar samfélagi og séu slík réttindi staðfesting þess efnis að einstaklingur hafi lokið tilskildu bók- og verknámi og uppfylli kröfur um færni. Meistarakerfinu sé ætlað að skapa hvata fyrir einstaklinga til að sækja sér iðnmenntun en ekki síður að skapa vissu og öryggi fyrir neytendur um að þau sem veiti þjónustu á sviði löggiltra iðngreina hafi tilskilda færni og sérhæfða þekkingu. Það er því ekki að ástæðulausu að iðngreinar séu löggiltar enda bera meistarar í iðngreinum ábyrgð á verkum sínum og þjónustu.
Neytendavernd höfð að leiðarljósi
Þá segir í greininni að með reglulegu millibili komi fram umræða um þörf á niðurfellingu löggiltra iðngreina í þeim tilgangi að auka frelsi. Þannig ætti öllum sem vilja, óháð því hvort viðkomandi hafi aflað sér sérfræðiþekkingar eða tilskilinnar færni, að vera heimilt að veita þjónustu sem geti verið allt frá húðmeðferð yfir í tengingu lagna í fjölbýli. Sú umræða virðist byggð á þeim rökum að það sé neytandanum og atvinnulífinu til góðs að lækka þröskuldinn, draga úr kröfum og auka þannig framboð. Greinarhöfundar segja að aftur á móti sé raunin sú að tilgangur lögbundinnar kröfu um meistararéttindi til iðnrekstrar sé að skapa heilbrigt og samkeppnishæft starfsumhverfi þar sem neytendavernd sé höfð að leiðarljósi. Þá séu ótalin jákvæð samfélagsleg áhrif kerfisins svo sem aukin verðmætasköpun og öruggara starfsumhverfi.
Réttindalausum fjölgað hratt undanfarin ár
Greinarhöfundar segja að til þess að viðhalda fagmennsku og tryggja að veitt þjónusta standist kröfur sé nauðsynlegt að til staðar sé virkt eftirlit með iðnrekstri. Staðan í dag sé sú að eftirlit með löggiltum iðngreinum sé lítið og brotakennt. Lögreglan hafi lögbundið eftirlitshlutverk með starfsemi löggiltra iðngreina en vegna álags og manneklu hafi eftirlitið verið af skornum skammti. Þannig hafi lögreglan ekki tök á því að fara í frumkvæðisathugun á hvort fyrirtæki og einstaklingar starfi í samræmi við lög um handiðnað. Afleiðingin sé sú að réttindalausum á markaði hafi fjölgað hratt undanfarin ár og því hafi fylgt ýmsar áskoranir svo sem svört atvinnustarfsemi og mansal. Þá segir í greininni að það skjóti skökku við að einstaklingar sem hafi lagt mikið á sig til þess að afla sér menntunar og réttinda starfi á sama markaði og réttindalausir án afleiðinga.
Eftirlit fært til HMS og Heilbrigðiseftirlits
Í greininni segir að mikilvægt sé að koma eftirliti í viðeigandi farveg. Færa þurfi eftirlit með réttindalausum aðilum til eftirlitsstofnana sem hafi þekkingu og séu betur til þess fallnar að sinna því með skilvirkum hætti. Það sé alvarlegt að eftirlitsstofnanir hafi ekki úrræði gagnvart réttindalausum aðilum sem starfi á sviði löggiltra iðngreina. Til að neytendur fái þá vernd sem lögin eigi að tryggja og til að skapa sanngjarnt samkeppnisumhverfi sé nauðsynlegt að bregðast við stöðunni. Greinarhöfundar segja að eftirlit með réttindalausum í mannvirkjaiðnaði þyrfti að færast til Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar, HMS, þar sem þekking sé til staðar og myndi slík breyting hafa í för með sér jákvæð samlegðaráhrif. Þá sé mikilvægt að færa eftirlit með handverksiðnaði, á borð við snyrtifræði og bakaraiðn til viðeigandi eftirlitsaðila svo sem Heilbrigðiseftirlitsins sem sinni þegar afmörkuðu eftirlitshlutverki með slíkum iðngreinum.
Hvetja stjórnvöld til að koma viðeigandi eftirliti á
Þá kemur fram í greininni að til þess að tryggja áframhaldandi traust á íslenskum iðngreinum sé nauðsynlegt að stjórnvöld og hagsmunaaðilar vinni saman að því að þróa og styrkja eftirlitskerfið og renni frekari stoðum undir meistarakerfið. Greinarhöfundar hvetja stjórnvöld til að koma viðeigandi eftirliti á. Það sé mikilvægt fyrir endurnýjun í iðngreinum að inn komi öflugt og áhugasamt fagfólk með rétta færni. Verði ekki brugðist við stöðunni muni það draga úr áhuga ungs fólks á að sækja sér iðnmenntun.
Ný ríkisstjórn styrki meistarakerfi og skapi skilvirkan vettvang fyrir nýliðun
Í niðurlagi greinarinnar segir að mikill vöxtur hafi verið í öllum helstu greinum iðnaðar síðustu ár sem hafi skilað sér í auknum lífsgæðum hér á landi. Það verkefni bíði nýrrar ríkisstjórnar að styrkja meistarakerfi löggiltra iðngreina og skapa skilvirkan vettvang fyrir nýliðun í iðngreinum sem styðji við áframhaldandi verðmætasköpun og neytendavernd.
Eftirtaldir formenn fag- og meistarafélaga innan SI skrifa undir greinina:
- Andri Týr Kristleifsson Félag hársnyrtimeistara og – sveina í Reykjavík
- Arna Arnadóttir Félag íslenskra gullsmiða
- Ármann Ketilsson Meistarafélag byggingamanna á Norðurlandi
- Berglind Hafsteinsdóttir Félag húsgagnabólstrara
- Bjarni Ólafur Marinósson Meistarafélag byggingamanna Vestmannaeyjum
- Böðvar Ingi Guðbjartsson Félag pípulagningameistara
- Daníel Óli Óðinsson Málmur – samtök fyrirtækja í málm- og skipaiðnaði
- Guðmundur S. Viðarsson Ljósmyndarafélag Íslands
- Hannes Björnsson Múrarameistarafélag Reykjavíkur
- Hilmar Hansson Félag dúklagninga- og veggfóðrarameistara
- Hjörleifur Stefánsson Samtök rafverktaka
- Hjörtur Árnason Félag rafeindatæknifyrirtækja
- Jón Sigurðsson Meistarafélag húsasmiða
- Jón Þórðarson Meistarafélag iðnaðarmanna í Hafnarfirði
- Katla Sigurðardóttir Klæðskera- og kjólameistarafélagið
- Kristján Aðalsteinsson Málarameistarafélagið
- Pétur Hákon Halldórsson Félag löggildra rafverktaka
- Rebekka Ýr Einarsdóttir Félag íslenskra snyrtifræðinga
- Rúnar Helgason Meistarafélag byggingamanna á Suðurnesjum
- Sigríður V. Bergvinsdóttir Félag hársnyrtimeistara á Norðurlandi
- Sigurður M. Guðjónsson Landsamband bakarameistara
- Snjólfur Eiríksson Félag skrúðgarðyrkjumeistara
- Stefán Þ. Lúðvíksson Félag blikksmiðjueigenda
- Valdimar Bjarnason Meistarafélag Suðurlands
Hér er hægt að lesa greinina í heild sinni.
Vísir, 15. nóvember 2024.