Raforkuverð hækkar langt umfram verðbólgu
Raforkuverð hefur hækkað um 16,1% á síðustu tólf mánuðum samkvæmt nýbirtum tölum Hagstofu Íslands. Sú hækkun er umtalsvert meiri en almenn verðbólga, sem mældist 3,8% á sama tímabili. Verðbólgan hefur farið minnkandi undanfarna mánuði á sama tíma og hækkun raforkuverð hefur aukist. Á tveimur árum nemur hækkun raforkuverðs alls 28%, en til samanburðar hefur vísitala neysluverðs hækkað um 10,2% á sama tíma. Ekki hefur mælst jafn mikil hækkun raforkuverðs frá árinu 2011.
Heimatilbúinn vandi
Hækkun raforkuverðs er heimatilbúinn vandi. Hækkunin endurspeglar að mati Samtaka iðnaðarins þá kyrrstöðu sem ríkt hefur í uppbyggingu raforkukerfisins á undanförnum árum. Á sama tíma og landsmönnum hefur fjölgað og hagkerfið vaxið hefur allt of lítil uppbygging átt sér stað í bæði raforkuvinnslu og dreifingu.
Íþyngir atvinnulífi og heimilum
Hækkun raforkuverðs kemur sér mjög illa fyrir íslensk fyrirtæki og heimili sem nú takast á við hækkun kostnaðar og stöðnun í efnahagslífinu. Mikil hækkun raforkuverðs bætist nú við háa innlenda vexti, hátt raungengi krónunnar og fleiri þætti sem vega að samkeppnishæfni íslenskra fyrirtækja. Dregur þetta úr getu þeirra til vaxtar og verðmætasköpunar.
Verðmunur á milli seljenda
Verð á hverri kílóvattstund (kWst) raforku með virðisaukaskatti er nú á bilinu 9,87 til 12,97 krónur hjá smásölum. Þessi verð hafa hækkað verulega á síðustu tveimur árum, þó með nokkrum mismun milli birgja.
Kyrrstaða dregur dilk á eftir sér
Samtök iðnaðarins telja brýnt að ráðist verði í markvissa uppbyggingu raforkukerfisins til að mæta vaxandi eftirspurn og tryggja stöðugleika í verði. Tryggja þarf samkeppnishæfni íslensks iðnaðar með traustu og hagkvæmu aðgengi að raforku, sem er ein af grunnstoðum atvinnulífsins á Íslandi.
mbl.is, 28. maí 2025.
Viðskiptablaðið, 28. maí 2025.