SI fagna lækkun gatnagerðargjalda á bílakjallara í Reykjavík
Samtök iðnaðarins (SI) fagna ákvörðun borgarráðs Reykjavíkur um að lækka gatnagerðargjöld á bílastæði í kjöllurum fjölbýlishúsa verulega. Borgarráð samþykkti á fundi sínum 13. ágúst að veita 90% afslátt af gatnagerðargjaldi á sameiginlegar bifreiðageymslur. SI hafa kallað eftir lækkun þessara gjalda og telja ákvörðunina mikilvægt skref til að draga úr kostnaði við íbúðauppbyggingu og bæta skilyrði fyrir uppbyggingu húsnæðis í Reykjavík.
Mikilvægt að borgin dragi úr álögum á uppbyggingu
Jóhanna Klara Stefánsdóttir, sviðsstjóri mannvirkjasviðs Samtaka iðnaðarins, segir ákvörðun borgarráðs mikilvæga: „Við fögnum þessari ákvörðun borgarráðs. Gjaldtakan á bílakjallara hafði hækkað gríðarlega á skömmum tíma og var farin að hafa veruleg áhrif á kostnað og hagkvæmni nýrra íbúðaverkefna. Það skaut skökku við að leggja svo þung gjöld á bílakjallara á sama tíma og lögð er áhersla á þéttingu byggðar og hagkvæma nýtingu lands. Með þessari ákvörðun er stigið mikilvægt skref í rétta átt.“
Jóhanna segir ákvörðunina einnig senda mikilvæg skilaboð um að hægt sé að bregðast við þegar álögur standa uppbyggingu fyrir þrifum: „Húsnæðismarkaðurinn þarf á skilvirkri og fyrirsjáanlegri uppbyggingu að halda og sveitarfélög hafa þar lykilhlutverki að gegna. Gjöld og kvaðir geta ráðið miklu um hvort verkefni verða að veruleika. Við hvetjum Reykjavíkurborg til að halda áfram á þessari braut og önnur sveitarfélög til að fara yfir sína gjaldtöku með sama hætti.“
Gjald á bílakjallara nær 26-faldaðist
Samtök iðnaðarins hafa ítrekað bent á að hratt hækkandi gatnagerðar- og byggingarréttargjöld sveitarfélaga hafi aukið verulega kostnað við uppbyggingu nýs húsnæðis. Greiningar SI sýna að átta stærstu sveitarfélög landsins innheimtu samtals um 57 milljarða króna í byggingarréttar- og gatnagerðargjöld á árunum 2022 til 2024. Þar af innheimti Reykjavíkurborg tæpa 19 milljarða króna.
Með breytingu á samþykkt um gatnagerðargjöld í Reykjavík sem tók gildi í febrúar 2025 hækkaði gatnagerðargjald á sameiginlegar bifreiðageymslur verulega. Gjaldið fór úr um 1.200 krónum á fermetra í um 31.500 krónur á fermetra.
Fyrir dæmigert 30 fermetra bílastæði í bílakjallara þýddi þetta að gatnagerðargjaldið hækkaði úr tæplega 37 þúsund krónum í um 942 þúsund krónur. Gjaldið nær 26-faldaðist á einu bretti.
SI hafa bent á að slíkar hækkanir hafi bein áhrif á hagkvæmni nýbyggingarverkefna. Gjöldin leggjast á nýjar íbúðir og þrengja svigrúm fyrirtækja til að ráðast í uppbyggingu á sama tíma og mikil þörf er fyrir hagkvæmt húsnæði.
Ákvörðun borgarráðs felur því í sér mikilvæga stefnubreytingu. Sameiginlegar bifreiðageymslur stuðla að hagkvæmari landnýtingu og draga úr þörf fyrir yfirborðsbílastæði.
Þörf á hóflegri og fyrirsjáanlegri gjaldtöku
Samtök iðnaðarins hafa áður bent á að gatnagerðargjöld stærstu sveitarfélaga landsins hafi hækkað um 67% að meðaltali á árunum 2020 til 2025, á sama tíma og byggingarvísitala hækkaði um 37%.
SI leggja áherslu á að gjaldtaka sveitarfélaga vegna nýbygginga sé hófleg, gagnsæ og fyrirsjáanleg. Mikilvægt er að sveitarfélög líti til þess að háar álögur á nýbyggingar skila sér í auknum byggingarkostnaði við húsnæði og geta dregið úr þeirri uppbyggingu sem þörf er á.
Ákvörðun borgarráðs Reykjavíkur er því kærkomin stefnubreyting og mikilvægt skref til að skapa betri skilyrði fyrir íbúðauppbyggingu í borginni.

