Fréttasafn



18. jan. 2017 Almennar fréttir

Þrír nýir starfsmenn hjá Samtökum iðnaðarins

Bryndís Jónatansdóttir hefur verið ráðin sérfræðingur í greiningum innan hugverkasviðs og framleiðslu- og matvælasviðs SI sem er nýtt starf innan samtakanna. Bryndís hefur starfað sem sérfræðingur í skapandi greinum, meðal annars í vinnuhóp fyrir málþing um tölfræði menningar og skapandi greina árið 2015 og var verkefnastjóri hjá Rannsóknarmiðstöð skapandi greina sama ár. Þá hefur hún starfað sem verkefnastjóri margvíslegra viðburða tengdum frumkvöðlum og nýsköpun.  Bryndís er með BS í Business Administration and Service Management og MS í Management of Creative Business Processes frá Copenhagen Business School.

Jóhanna Vigdís Arnardóttir hefur verið ráðin verkefnastjóri í menntamálum. Jóhanna Vigdís hefur starfað sem leikkona og söngkona í fjölda ára og verið fastráðin leikkona við Borgarleikhúsið frá árinu 2000. Hún hefur komið fram á ýmsum tónleikum og sungið inn á fjölda geisladiska. Jóhanna Vigdís er útskrifuð leikkona frá Leiklistarskóla Íslands og hefur lokið MBA námi frá Háskólanum í Reykjavík. Hún hefur einnig lokið burtfararprófi í söng og píanóleik frá Tónlistarskóla Garðabæjar auk þess sem hún hefur BA gráðu í frönsku frá Háskóla Íslands.

Vignir Örn Guðmundsson hefur verið ráðinn sérfræðingur á hugverkasviði SI. Vignir Örn er formaður Samtaka leikjaframleiðenda (IGI) sem er starfsgreinahópur innan SI. Hann er einn af stofnendum Radiant Games og hefur verið framkvæmdastjóri tölvuleikjafyrirtækisins frá árinu 2014. Vignir Örn starfaði um skeið hjá Fraunhofer CESE í Maryland, þar sem hann vann að hugbúnaðarprófunum fyrir NASA. Hann hefur einnig fengist við kennslu í tölvunarfræðideild Háskólans í Reykjavík og haldið fjölda fyrirlestra á ráðstefnum. Vignir Örn er með BS í stærðfræði og MS í tölvunarfræði frá Háskólanum í Reykjavík.

Almar Guðmundsson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, segir þetta mikinn liðsauka fyrir samtökin. „Þau koma öll þrjú með þekkingu og reynslu á sviðum sem eru mikilvæg fyrir iðnaðinn. Fjölbreyttur bakgrunnur þeirra mun nýtast vel fyrir aðildarfyrirtækin okkar hvort heldur er á sviði hugverka, framleiðslu eða menntamála. Ég er því sannfærður um að þau eiga eftir að reynast okkur góðir liðsmenn.“