Tollflokkun pizzaosts staðfest enn á ný
Landsréttur hefur vísað frá máli Danóls ehf. gegn ríkinu um tollflokkun pizzaosts. Danól ehf. hafði áfrýjað málinu til Landsréttar eftir að Héraðsdómur Reykjavíkur hafði öðru sinni hafnað kröfu fyrirtækisins um að ógilda bindandi álit Skattsins um tollflokkun á pizzaosti með viðbættri jurtaolíu. Umrædd vara skal því áfram tollflokkast sem ostur en ekki jurtaostur, í samræmi við íslensk tollalög.
Margrét Gísladóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í landbúnaði (SAFL): „Niðurstaða Landsréttar er í raun enn ein staðfestingin á því að ostur er og verður ostur, þrátt fyrir að út í hann sé bætt jurtaflögum, og skal tollflokkast sem slíkur. Ég fagna því að enn á ný skuli íslenskir dómstólar staðfesta að ostur er ostur. Tollvernd er önnur tveggja stoða stuðningskerfis íslensks landbúnaðar og breytingar þar á geta haft miklar afleiðingar fyrir greinina, hvort sem litið er til samkeppnishæfni eða rekstrarákvarðana. Hér er um að ræða mál sem búið er að taka fyrir á öllum dómstigum, og nú oftar en einu sinni, þar sem niðurstaðan er ávallt sú sama. Tollflokkunin er í samræmi við íslensk tollalög og hún stendur.“
Áralangur málarekstur
Upphaf málsins má rekja allt til febrúar 2020 en þá gaf tollstjóri út bindandi álit um tollflokkun vöru sem ber heitið Festino IQF Mozzarella Pizza Mix, sem er rifinn ostur (82-83% mozzarella) blandaður við jurtaolíu (11-12% pálmaolía) auk sterkju. Skyldi varan tollflokkast sem ostur og bera 30% verðtoll auk magntolls á innflutning utan tollkvóta.
Danól ehf. höfðaði mál á hendur ríkinu árið 2021 þar sem fyrirtækið leitaðist við að ógilda þetta bindandi álit tollgæslustjóra. Tapaði fyrirtækið málinu fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur, áfrýjaði til Landsréttar, tapaði málinu þar aftur, óskaði eftir leyfi til áfrýjunar til Hæstaréttar og var þeirri beiðni hafnað af Hæstarétti. Þá var óskað eftir endurupptöku til Endurupptökudóms og var þeirri beiðni einnig hafnað. Málið var aftur tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur og tapaðist að nýju. Áfrýjaði fyrirtækið aftur til Landsréttar sem nú hefur vísað málinu frá.
Tollvernd mikilvæg stoð innlendrar matvælaframleiðslu
Samhliða málarekstrinum hafa innflutningsaðilar þrýst á stjórnvöld að fella niður toll á umræddri vöru. Samtök fyrirtækja í landbúnaði hafa ásamt öðrum samtökum íslenskra matvælaframleiðenda lagst gegn slíkum hugmyndum enda umfangsmiklir hagsmunir í húfi fyrir innlenda framleiðslu.
mbl.is, 12. mars 2026.
Viðskiptablaðið, 12. mars 2026.
Vísir, 12. mars 2026.

