Fréttasafn



16. sep. 2022 Almennar fréttir Iðnaður og hugverk Nýsköpun

Vaxtarsproti ársins er Controlant með 929% vöxt í veltu

Fyrirtækið Controlant hefur verið valið Vaxtarsproti ársins sem er viðurkenning fyrir öfluga uppbyggingu sprotafyrirtækis. Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, afhenti Vaxtarsprotann í Flórunni í Grasagarðinum í Laugardal.

Controlant er alþjóðlegt fyrirtæki sem þjónustar mörg af stærstu lyfjafyrirtækjum heimsins. Hjá fyrirtækinu starfa 390 einstaklingar frá yfir 40 löndum. Velta fyrirtækisins jókst um 929% á milli áranna 2020 og 2021 þegar veltan fóru úr 865 milljónum króna í 8,9 milljarða króna.

Gísli Herjólfsson, einn stofnanda og forstjóri Controlant: „Þessi viðurkenning mun hvetja okkur áfram á vegferð okkar í að útrýma sóun í einni af mikilvægustu virðiskeðju í heimi. Á 15 árum hefur Controlant vaxið og dafnað frá því að vera hugmynd í að vera sproti sem náði að skjóta rótum. Til að vaxa þarf sproti að vera í góðum aðstæðum, með næringaríkum jarðvegi og skapandi umhverfi. Við hjá Controlant viljum nota þetta tilefni til að þakka nýsköpunarsamfélaginu á Íslandi fyrir stuðninginn og hvatninguna undanfarin ár og sérstaklega minna á hversu mikilvæg og nauðsynleg endurgreiðsla rannsóknar- og þróunarkostnaðar er fyrir nýsköpun á Íslandi. Að okkar mati er það ein af grunnforsendum fyrir nýsköpun og því að Ísland viðhaldi samkeppnishæfni auk þess að að vera frábær fjárfesting fyrir íslenska ríkið og samfélagið í heild. Ég vil þakka starfsfólki Controlant fyrir þann frábæra árangur sem við höfum náð með þrautseigju, hugviti og samheldni.“

Tvö önnur fyrirtæki, Sidekick Health og Coripharma hlutu einnig viðurkenningar. Sidekick Health sem sérhæfir sig í heilbrigðistækni hlaut sérstaka viðurkenningu fyrir góðan vöxt í veltu. Velta fyrirtækisins jókst um 160% á milli ára, fór úr 250 milljónum króna í 650 milljónir króna milli 2020 og 2021. Coripharma hlaut sérstaka viðurkenningu fyrir að velta í fyrsta sinn einum milljarði króna. Velta Coripharma fór í fyrsta skipti yfir 1 milljarð króna á síðasta ári, fór úr 888 milljónum króna árið 2020 í 1,3 milljarða króna 2021. Coripharma sérhæfir sig í framleiðslu og þróun lyfja fyrir önnur lyfjafyrirtæki um heim allan, ásamt því að þróa sín eigin lyf.

Vaxtarsprotinn er samstarfsverkefni Samtaka iðnaðarins, Samtaka sprotafyrirtækja, Háskólans í Reykjavík og Rannsóknarmiðstöðvar Íslands. Þetta er í 16. skiptið sem viðurkenningarnar eru veittar en tilgangur verkefnisins er að vekja athygli á góðum árangri sprotafyrirtækja í örum vexti og skapa þannig aukinn áhuga og skilning á uppbyggingarstarfi þessara fyrirtækja. Í dómnefnd voru Gísli Hjálmtýsson fyrir Háskólann í Reykjavík, Lýður Skúli Erlendsson fyrir Rannís, Kolbrún Hrafnkelsdóttir fyrir Samtök sprotafyrirtækja og Sigríður Mogensen fyrir Samtök iðnaðarins.

Fyrirtæki sem hafa hlotið Vaxtarsprotann Fyrirtæki sem hafa fengið viðurkenningu fyrir góðan vöxt
2007 Marorka 2007 Gagarín, Stiki, Stjörnu-Oddi
2008 Mentor 2008 Betware, Valka, Kine
2009 Mentor 2009 Naust Marine, Gogogic, Saga Medica
2010 Nox Medical 2010 Valka, Hafmynd, Menn og Mýs
2011 Handpoint 2011 Marorka, Trackwell, Gogogic
2012 Valka 2012 Kvikna, ORF Líftækni, Thorice
2013 Meniga 2013 Controlant, Nox Medical, Lceconsult
2014 DataMarket 2014 Valka, Nox Medical, Skema
2015 Kvikna 2015 Kvikna, Valka
2016 Eimverk 2016 Lauf Forks, Orf Líftækni, Valka
2017 Kerecis 2017 TeqHire, Valka, Kvikna
2018 Kaptio 2018 Kerecis, Gangverk, Orf-Líftækni
2019 CRI 2019 Taktikal, Kerecis
2020 Kerecis 2020 CRl, Pure North Recycling
2021 1939 Games 2021 Coripharma, Algalíf
2022 Controlant 2022 Sidekick Health, Coripharma

 

Myndir/BIG

Á Facebook SI er hægt að nálgast fleiri myndir frá viðburðinum.

Frá afhendingu Vaxtarsprotans í Grasagarðinum í Laugardal. Á myndinni eru, talið frá vinstri, Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, Árni Brynjúlfsson, stjórnandi á tæknisviði Controlant, Atli Þór Hannesson, einn stofnanda og stjórnandi á tæknisviði Controlant, Aðalheiður Pálmadóttir, forstöðumaður á sölu- og markaðssviði Controlant, og Árni Sigurjónsson, formaður SI.

Si_vaxtarsprotinn_2022_hopmynd-1-002-Á myndinni eru, talið frá vinstri, Kolbrún Hrafnkelsdóttir hjá Samtök sprotafyrirtækja, Ólafur Viggósson, tækni- og vörustjóri Sidekick Healt, Sigríður Mogensen hjá Samtök iðnaðarins,  Árni Brynjúlfsson, stjórnandi á tæknisviði Controlant, Lýður Skúli Erlendsson hjá Rannís, Atli Þór Hannesson, einn stofnanda og stjórnandi á tæknisviði Controlant, Árni Sigurjónsson, formaður SI, Aðalheiður Pálmadóttir, forstöðumaður á sölu- og markaðssviði Controlant, Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, og Jónína Guðmundsdóttir, forstjóri Coripharma.

Si_vaxtarsprotinn_2022-20Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra.

Si_vaxtarsprotinn_2022-5Árni Sigurjónsson, formaður SI.

Si_vaxtarsprotinn_2022-2Sigríður Mogensen, sviðsstjóri iðnaðar- og hugverkasviðs SI. 

Si_vaxtarsprotinn_2022-7
mbl.is, 16. september 2022.

Viðskiptablaðið, 16. september 2022.

Fréttablaðið, 16. september 2022.