Fréttasafn



20. sep. 2023 Almennar fréttir Iðnaður og hugverk Orka og umhverfi

Yfirvofandi skortur á raforku og heitu vatni

Í ViðskiptaMogganum er vitnað til orða Sigríðar Mogensen, sviðsstjóra iðnaðar- og hugverkasviðs SI, í viðtali í nýjum þætti Dagmála sem birt er á mbl.is þar sem hún segir að miðað við núverandi forsendur séu full orkuskipti fyrir árið 2040, eins og stefnt er að, að fullu óraunhæf. Ástæðan fyrir því sé fyrst og fremst skortur á orkuframboði. Sigríður segir að rekja megi yfirvofandi orkuskort til kyrrstöðu sem hafi ríkt í orkuframleiðslu í meira en áratug. „Við höfum alla burði til að ná þessum markmiðum, en þá þurfum við að fara af stað. Í rauninni hefði verið best ef orkuframleiðsla hefði vaxið jafnt og þétt á síðustu árum, sem hún hefur því miður ekki gert.“ 

Að öllu óbreyttur einnig skortur á heitu vatni

Þá segir að Sigríður bæti við að afleiðingar þessa séu nú þegar komnar fram, meðal annars í skerðingum á raforku yfir vetrartímann og innflutningur á olíu hafi einnig aukist sem gangi gegn þeim markmiðum sem stjórnvöld hafi sett sér um fyrirhuguð orkuskipti. Einnig kemur fram í viðtalinu við Sigríðir að það sé þó ekki aðeins skortur á rafmagni sem vofi yfir heldur verði að öllu óbreyttu skortur á heitu vatni á næstu árum. „Það er staða sem er mjög umhugsunarverð, í landi þar sem við búum yfir miklum auðlindum.“  

Rangar upplýsingar Landverndar

Sigríður segir að engin einföld skýring sé á því hvernig kyrrstaðan verði til en segir þó að hávær hópur hafi gert sig mjög gildandi í umræðunni og haldið umræðunni um orkumál í gíslingu. „Þangað til fyrir nokkrum misserum stóðu margir í þeirri trú […] að það væri gnótt af orku á Íslandi og að við værum í raun búin með þetta verkefni.“ Hún vísar til þess að félagasamtök á borð við Landvernd hafi ranglega haldið því fram að Íslendingar framleiddu mesta orku á mann í heimi. 

Upplýsingaóreiða Orkustofnunar 

Í viðtalinu kemur fram að Sigríður gagnrýni þær forsendur sem Orkustofnun hafi sett fram til að ná fram orkuskiptum hér á landi og segir þær upplýsingar sem stofnunin hafi kynnt skapa upplýsingaóreiðu um málaflokkinn. Aðspurð segir Sigríður að stefna stjórnvalda, þá í þessu tilviki ríkisstjórnarinnar, sé mjög skýr enda um hana fjallað í stjórnarsáttmála og öðrum gögnum á vegum stjórnvalda. 

Þörf á að tvöfalda orkuframleiðslu hér á landi

Sigríður segir að þrátt fyrir að ráðherra málaflokksins hafi talað skýrt hafi undirstofnanir ekki fylgt honum að máli. Þá segir í ViðskiptaMogganum að fram komi í máli Sigríðar að þörf sé á því að tvöfalda orkuframleiðslu hér á landi, en til þess að það verði að veruleika þurfi stjórnkerfið að vinna eftir skýrum markmiðum. Í þættinum er einnig rætt um stöðu Íslands í samanburði við aðrar þjóðir, hvort hægt sé að leggja mat á glötuð tækifæri vegna orkuskorts og margt fleira.

Hér er hægt að nálgast viðtalið við Sigríði í Dagmálum á mbl.is. 

ViðskiptaMogginn / Dagmál á mbl.is / mbl.is, 20. september 2023.  

VidskiptaMoggi-20-09-2023