5-L18-2014
TAKMÖRK OG AÐGERÐARÁÆTLANIR
|
Síða. |
1 af 1 |
|
Höf. |
FH |
||
Dags. |
20.08.09 |
||
Útgáfa. |
1 |
||
Samþykkt: |
|
MARKMIÐ OG GILDISSVIÐ: |
Tilgangur þessarar
verklagsreglu er að tryggja að í fyrirtækinu fari fram nægileg vöktun á þeim
umhverfisþáttum sem snerta starfsemi fyrirtækisins. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
ÁBYRGÐARMAÐUR: Framkvæmdastjóri er ábyrgur fyrir að þessari verklagsreglu sé
fylgt og hún uppfærð eftir þörfum. AÐFERÐ: Fara þarf í gegnum öll atriðin fyrir hvern
einstakan starfsmann. EFTIRFYLGNI: Þessi verklagsregla ætti
alltaf að vera hluti af kynningu fyrir nýja starfsmenn. Fyrir aðra starfsmenn
ætti að nota verklagsregluna með reglulegu millibili og að minnsta kosti einu
sinni á ári. LÝSING: 1.
Framsetning
á takmörkum og aðgerðaáætlunum
Að minnsta kosti einu sinni á ári, þarf sá aðili sem er ábyrgur fyrir þessari
verklagsreglu að meta þörfina á að skilgreina umhverfistakmörk og
aðgerðaáætlanir. Framsetning á takmörkum og aðgerðaáætlun er gerð á grunni árlegrar
eftirfylgni Þrep 1 – Staða fyrir takmörk og aðgerðaáætlanir
Skoðið síðustu ályktanir um takmörk og aðgerðaáætlanir í verklagsreglu
№ 5-L18-2015 varðandi eftirfylgni: Ø
Ef metið er
að einhverjum af núverandi umhverfistakmörkum og aðgerðaáætlunum, sé ekki
fylgt og/eða náð, verða þau að vera inni í aðgerðaáætlunum fyrir næsta
tímabil (sjá þrep 4 hér að neðan) Þrep 2 – Umhverfisþættir
Fyrir alla þá
umhverfisþætti sem valdir hafa verið, skráið inn tímabil, vöktunaraðferð
o.s.frv. í töfluna hér að neðan (bætið við fleiri línum ef þarf). Skoðið síðustu ályktanir um umhverfisþætti í verklagsreglu № 5-L18-2015 varðandi eftirfylgni, sem og vöktunaráætlun
í verklagsreglu № 5-L18-2013 um umhverfisþætti: Ø
Ef
einhverjir umhverfisþættir eru metnir sem svo að þeir skipti máli, ætti að
skoða að fella þá inn í takmörk og aðgerðaáætlun fyrir næsta tímabil (sjá
þrep 4 hér að neðan) Þrep 3 – Lagalegar kröfur
Skoðið síðustu ályktanir um lagalegar kröfur í verklagsreglu № 5
varðandi eftirfylgni, sem og skrá yfir núverandi lagalegar kröfur í
verklagsreglu № 5-L18-2012 um lagalegar kröfur: Ø
Ef
einhverjar lagalegar kröfur eru metnar sem svo að þær skipti máli fyrir
frekari aðgerðir, ætti að skoða að fella þær inn í takmörk og aðgerðaáætlanir
fyrir næsta tímabil (sjá þrep 4 hér að neðan) Þrep 4 – Framsetning á takmörkum og aðgerðaáætlunum
Fyllið inn í eyðublaðið fyrir takmörk og aðgerðaáætlun í EMS light-Nordic excel tækinu, í samræmi við ályktanir í þrepum 1-3 hér að
ofan. Fylgið leiðbeiningunum sem fylgja. Munið að láta takmörk og aðgerðir sem ekki eru útrunnin, fylgja í nýrri
aðgerðaáætlun. 2.
Vöktun á
aðgerðaáætlunum
Nægjanleg vöktun þarf að vera á öllum aðgerðaáætlunum sem eru í gangi,
til að tryggja að öllum aðgerðum sé hrint í framkvæmd eins og áætlað er, eða
lagaðar ef þarf. Gott er að láta annan aðila en þann sem er ábyrgur fyrir framkvæmd
sértækra aðgerða hafa eftirlit með því hvort samþykktum tímamörkum sé náð.
Hægt er að nota töfluna hér að neðan í þeim tilgangi. Númerin vísa til númers
á takmarki og númeri á aðgerð í aðgerðaáætlunum. Bætið við línum og töflum
eftir þörfum.
|