Skólastjórnendur kynna sér íslenska menntatækni

Skólastjórar frá Eistlandi og Lettlandi kynntu sér íslenska menntatækni

Skólastjórnendur kynna sér íslenska menntatækni

Skólastjórar frá Eistlandi og Lettlandi ásamt forsvarsfólki Ungra frumkvöðla heimsóttu Samtök iðnaðarins í dag í Húsi atvinnulífsins í þeim tilgangi að kynnast íslenskri menntatækni.

Íris E. Gísladóttir, formaður Samtaka menntatæknifyrirtækja, kynnti fyrirtæki sitt Evolytes og forrit sem stuðlar að því að nemendur frá unga aldri læri grunn stærðfræðinnar. Í erindi hennar kom fram að Evolytes námskerfið notar árangursríkar aðferðir til að kenna börnum 5-10 ára stærðfræði hraðar.

Helgi Karlsson frá Beanfee kynnti menntatæknifyrirtækið sitt sem hefur sýnt góðan árangur í að hvetja börn sem eru með hegðunarvanda í átt að betri líðan og námsárangri. Hann sagði Beanfee hjálpa börnum og fjölskyldum þeirra í því að breyta hegðun.

Ungir frumkvöðlar sem var stofnað 2002 er félag í alþjóðasamtökunum JA sem starfa í 123 löndum. Um 10,5 milljón nemenda taka þátt í verkefnum á vegum samtakanna víðs vegar um heiminn. Markmið JA er að undirbúa ungt fólk fyrir framtíðina og auka færni þeirra til atvinnuþátttöku og atvinnusköpunar með því að stuðla að aukinni nýsköpunar-, frumkvöðla- og viðskiptamenntun í skólum. JA fyrirtækjasmiðja er nú í 18 framhaldsskólum hér á landi en í nokkrum löndum er verkefnið á öllum skólastigum.

Í stjórn JA á Íslandi eru fulltrúar frá mennta- og barnamálaráðuneytinu, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytinu, Samtökum atvinnulífsins, Landsvirkjun, Arion banka, Sjávarklasanum og Háskólanum í Reykjavík.

Gestirnir frá Eistlandi og Lettlandi ásamt Petru Bragadóttur sem er framkvæmdastjóri JA á Íslandi, Huldu Birnu Kjærnested Baldursdóttur, verkefnastjóra í mennta- og mannauðsmálum hjá SI, Írisi E. Gísladóttur hjá Evolytes og Helga Karlssyni hjá Beanfee.

Skólastjórnendur kynna sér íslenska menntatækni - Samtök Iðnaðarins