Ísland á að setja sér það markmið að verða meðal fremstu þjóða Evrópu í menntun. Til þess þurfum við að nýta allt það hugvit sem við búum yfir. Nemendur og kennarar þurfa að hafi aðgang að fjölbreyttum og vönduðum námsgögnum og þar getur íslenskt hugvit nýst til að búa þau til. Kennarar, sérfræðingar og áhugafólk um betri skóla hafa þegar þróað lausnir sem mæta mörgum af þeim áskorunum sem skólarnir glíma við. Mörg þeirra hafa stofnað fyrirtæki sem eiga aðild að Samtökum menntatæknifyrirtækja, IEI, sem eru aðildarsamtök Samtaka iðnaðarins. Fyrirtækin þróa gagnvirk námsgögn, námskerfi og gæðakerfi fyrir skóla ásamt lausnum á sviði mennta- og mannauðsmála. Tækifærin í þessum iðnaði eru gríðarleg. Samkvæmt markaðsgreiningu er evrópski menntatæknimarkaðurinn einn og sér metinn á hátt í 8.000 milljarða króna og vex um tæp 13% á ári.
Lausnirnar eru til og gætu bætt skólastarf á morgun
Sem dæmi má nefna lausnina Læsi, sem auðveldar utanumhald um lestur nemenda og samskipti heimila og skóla. Annað dæmi er Evolytes sem sameinar stærðfræðibækur og leik og lagar verkefnin að færni hvers nemanda. Kerfið var notað í 161 grunnskóla á síðasta skólaári. Nú stendur yfir Stóra stærðfræðikeppnin, kostuð af farsældarhraðlinum Andvara, þar sem nemendur vinna sig í gegnum heilu námsbækurnar á einni viku. Önnur íslensk fyrirtæki þróa vefbækur fyrir framhaldsskóla, máltæknilausnir sem styðja inngildingu, stærðfræði, gagnvirkar lestrarbækur, hvatakerfi og lausnir fyrir nemendur með fjölbreyttar námsþarfir.
Námsgögn mega ekki vera afgangsstærð
Þrátt fyrir mikinn áhuga og góðan árangur er aðgangur allra skóla að þessum lausnum ekki tryggður. Það á líka við um Evolytes, sem stendur ekki öllum nemendum í 1.–5. bekk til boða. Ástæðan er oftast sú að skólarnir hafa ekki fjármagn til að nýta lausnirnar, þótt margar þeirra hafi verið þróaðar með nýsköpunarstyrkjum frá hinu opinbera. Ríkið ber ábyrgð á námsgögnum, en sveitarfélögin reka skólana og bera kostnaðinn þegar námsgögnin vantar.
Samkvæmt skýrslu Sambands íslenskra sveitarfélaga fjölgaði stöðugildum í grunnskólum um 69% á árunum 1998–2022. Á sama tíma fjölgaði nemendum aðeins um 11%, og að stærstum hluta voru það börn sem fluttu til landsins. Skólakerfið hefur því stækkað hratt, en námsgögnin hafa ekki fylgt í sama takti. Fjölbreyttari nemendahópur kallar á fjölbreytt og inngildandi námsgögn. Námsgögnin eru grunnur góðrar kennslu og þurfa að koma fyrst. Þau mega ekki vera afgangsstærð í rekstri.
Smæðin kallar ekki á eina leið
Því er stundum haldið fram að smæð málsvæðisins kalli á að ríkið sjái eitt um útgáfu námsgagna. Færeyingar styðjast að stórum hluta við danskt námsefni og sænskumælandi Finnar við námsgögn frá Svíþjóð. Í Finnlandi gefa einkaforlög auk þess út stærstan hluta námsgagna. Finnska menntamálastofnunin (Opetushallitus) gefur einkum út efni fyrir fámenna hópa sem markaðurinn sinnir ekki og hefur samráð við forlögin til að forðast tvíverknað. Smæð málsvæðis kallar því ekki á að ríkið sitji eitt að útgáfunni. Opinber útgáfa á áfram rétt á sér þar sem markaðurinn annar ekki þörfinni, en hún á ekki að vera eina leiðin.
Eistar fóru aðra leið
Eistar hafa um árabil verið meðal þeirra Evrópuþjóða sem ná bestum árangri í alþjóðlegum námskönnunum. Þar hefur faglegt sjálfstæði kennara verið tengt við fjölbreytt framboð námsgagna, stafrænar lausnir og virkt samstarf skóla við nýsköpunarfyrirtæki sem þróa þau. Smæðin varð hvati til að nýta tæknina, ekki hindrun.
Hér á landi er sama hugsun þegar bundin í lög. Námsgagnasjóði er ætlað að leggja grunnskólum til fé til námsgagnakaupa til að tryggja val þeirra um námsgögn. Sjóðurinn úthlutaði þó aðeins um 64 milljónum króna til allra grunnskóla landsins skólaárið 2020–2021, eða innan við 1.500 krónum á nemanda. Að mati stjórnar sjóðsins er framlagið aðeins um þriðjungur af því sem það ætti að vera.
Tækifæri til framtíðar
Samtök menntatæknifyrirtækja eru ekki að kalla eftir fleiri snjalltækjum í skólana. Samtökin kalla eftir markvissum lausnum sem létta utanumhald, mæta þörfum allra nemenda og hvetja þá til náms. Slík verkfæri hafa kennarar kallað eftir. Þau létta álagi af kennurum, og þau má aðlaga að öðrum tungumálum og selja erlendis.
Með því að efla íslenskt hugvit í menntun byggjum við upp útflutningsgrein í tækni- og hugverkaiðnaði sem til framtíðar getur staðið undir þeim námsgögnum sem skólarnir þurfa. Fjárfesting í námsgögnum er þá ekki aðeins kostnaður heldur verðmætaskapandi hringrás sem styrkir bæði menntakerfið og atvinnulífið.
Til að bæta stöðuna þarf að auka fjármagn til námsgagna og menntatækni til muna. Markmiðið er ekki að ríkið velji lausnir fyrir skólana heldur að skólarnir hafi raunverulegt val á samkeppnismarkaði. Samhliða viljum við efla samstarf skóla, sveitarfélaga, stjórnvalda og fyrirtækja, bæði hér heima og við systursamtök í Evrópu, svo íslensk menntatækni komist inn í skóla víða um álfuna. Heimamarkaðurinn er stökkpallurinn en sóknarfærin liggja í Evrópu. Norræna menntaáætlunin Nordplus og evrópsku áætlanirnar Erasmus+ og Digital Europe leggja allar áherslu á stafræna hæfni og betri menntun. Þangað eigum við að leita eftir samstarfi. Nýtum tækifærið og gerum þetta saman.
Við þurfum ekki að velja á milli námsgagna og nýsköpunar. Aukum fjármagn til námsgagna, látum það fylgja skólunum, virkjum íslenskt hugvit og komum Íslandi í fremstu röð í menntun.
Hulda Birna Kjærnested Baldursdóttir, viðskiptastjóri Samtaka menntatæknifyrirtækja hjá Samtökum iðnaðarins.
20. nóvember 2026.



