Fréttasafn



3. jún. 2022 Almennar fréttir Innviðir Mannvirki Menntun

700 vísað frá iðnnámi þegar vantar iðnmenntað starfsfólk

Rætt er við Ingólf Bender, aðalhagfræðing SI, í Fréttablaðinu þar sem fjallað er um alvarlegan skort á fagmenntuðum iðnaðarmönnum í byggingariðnaði hér á landi. Þar kemur fram að ef áform stjórnvalda um að stórauka smíði á íbúðarhúsnæði á kjörtímabilinu vanti minnst 2.000 nýja starfsmenn í greinina. „Á síðasta skólavetri var 700 manns vísað frá iðnnámi í landinu af því að stjórnvöld hafa ekki lagt nægjanlegt fjármagn í iðnnám til að mæta þeirri bráðu mannaflaþörf sem er í greininni. Útlit er fyrir að jafnvel fleirum verði vísað frá í ár, en til stendur að fækka nemendaígildum við Tækniskólann um 80 frá fyrra ári. Það er ekkert samhengi á milli íbúðaskorts og menntunarmöguleika hér á landi,“ segir Ingólfur í Fréttablaðinu.

Mörg hundruð þrá að komast í iðnnám en er vísað á dyr

Í fréttinni kemur fram að nú séu tæplega 15.000 manns starfandi í byggingageiranum á Íslandi og hafi fjölgað um 1.300 manns frá því að greinin fór að taka við sér fyrir um ári, eftir að viðspyrna hófst á ný í hagkerfinu í kjölfar ládeyðu farsóttartímans. „En það er ekki nóg, við þurfum að flytja inn vinnuafl, það er alveg ljóst,“ segir Ingólfur. Hann segir þetta vera sorglega staðreynd, en mörg hundruð manns á Íslandi þrái að komast í iðnnám hér á landi á hverju ári en sé vísað á dyr. 

Aukinn mannskap þarf bæði í nýsmíði og viðhaldi á innviðum

Þá segir í Fréttablaðinu að fjöldi starfsmanna í byggingariðnaðinum hafi enn ekki náð þeim fjölda sem var fyrir efnahagshrunið 2008, en þá hafi um18.000 manns verið við störf í greininni. Þann fjölda þurfi að nálgast aftur til að mæta fólksfjöldaþróun Hagstofunnar að mati Ingólfs. Til að svo verði þurfa hér eftir að klárast árlega um 3.500 til 4.000 nýjar íbúðir ári, en til samanburðar verða innan við 3.000 íbúðir byggðar hér á landi í ár og rétt aðeins yfir þeirri tölu á næsta ári. „Vandinn er líka sá að aukinn mannskap þarf ekki bara í nýsmíði heldur hefur safnast upp mikil viðhaldsþörf í innviðakerfinu á síðustu árum þar sem því hefur alls ekki verið sinnt nægjanlega. Þetta á til dæmis við um vegakerfið. Þar mun spurnin eftir iðnaðarmönnum verða mikil á næstu árum ef stjórnvöld ætla að bæta ástand innviðanna.“ 

Fréttablaðið / Frettabladid.is, 3. júní 2022.

Frettabladid-03-06-2022_2