Beint í efni

Blikk­smiðjur sameinast um jólaskraut til styrktar Píeta samtökunum

Á vel sóttum jólafundi Félags blikksmiðjueigenda var kynnt verkefni tíu blikksmiðja til styrktar Píeta samtökunum.

Blikk

Tíu blikksmiðjur víðs vegar um landið ætla að leysiskera jólaskraut til styrktar Píeta samtökunum. Verkefnið, sem ber heitið „Blikkaðu um jólin og gefðu gjöf sem gefur“, var kynnt á vel sóttum jólafundi Félags blikksmiðjueigenda, Villibráðarblikki, í Húsi atvinnulífsins 19. nóvember sl.

Félagsmenn komu saman yfir jólamat og Stefán Þ. Lúðvíksson, formaður félagsins, bauð gesti velkomna og fór yfir helstu verkefni stjórnarinnar í haust. Þar hefur mest áhersla verið lögð á að kynna blikksmíði fyrir ungu fólki og vekja áhuga þess á náminu, meðal annars með auglýsingum á samfélagsmiðlum. Örvar Þór Kristjánsson sló svo á létta strengi með uppistandi sem vakti góðan hlátur.

Á fundinum kynntu stjórnarmennirnir Ingi Björn Róbertsson og Gauti Fannar Gestsson styrktarverkefni félagsins. Jólaskrautið sækir innblástur í íslenskar kirkjur og önnur kennileiti. Allur ágóði af sölunni rennur til Píeta samtakanna.

Í fyrstu viku desember verður hægt að kaupa skrautið á vef Félags blikksmiðjueigenda. Þar verður einnig hægt að finna blikksmiðju í nágrenni landsmanna þar sem hægt er að nálgast skrautið.

Píeta samtökin sinna sjálfsvígsforvörnum og veita fólki 18 ára og eldra gjaldfrjálsa, gagnreynda meðferð vegna sjálfsvígshugsana eða sjálfsskaða. Samtökin veita einnig aðstandendum stuðning, þar á meðal þeim sem hafa misst ástvin í sjálfsvígi.

Blikk
Blikk
Blikk
Blikk