Beint í efni

Vel sóttur súpufundur iðnmeistara í Hafnarfirði

Um 40 iðnmeistarar kynntu sér uppbyggingaráform Hafnarfjarðar og nýja verkbókhaldslausn á súpufundi Meistarafélags iðnaðarmanna í Hafnarfirði.

MIH

Meistarafélag iðnaðarmanna í Hafnarfirði hélt súpufund í golfskála Golfklúbbsins Keilis í síðustu viku. Fundurinn var vel sóttur en um 40 manns mættu.

Á fundinum var fjallað var um uppbyggingaráform bæjarins. Orri Björnsson, formaður bæjarráðs Hafnarfjarðar, og Þórður Þórarinsson, bæjarstjóri Hafnarfjarðar, fluttu erindi fyrir félagsmenn.

Þá kynnti Borgar Erlendsson verkbókhaldslausnina Kozmoz sem er ætluð fyrir iðnaðarmenn og verktaka. Í kerfinu er hægt að skrá vinnutíma og efniskostnað á einstök verk og flytja gögnin yfir í bókhaldskerfi. Nánari upplýsingar um lausnina eru á kozmoz.app.

MIH
MIH
MIH
Borgar Erlendsson hjá Kozmoz.
MIH
Vel sóttur súpufundur iðnmeistara í Hafnarfirði - Samtök Iðnaðarins