Á súpufundi Meistarafélags byggingarmanna á Suðurnesjum, MBS, sköpuðust góðar umræður um stöðu verkefna, skatta og gjöld en fundurinn fór fram á Hótel Marriott í Reykjanesbæ í gær. Fundarstjóri var Grétar I. Guðlaugsson, formaður MBS.
Á fundinum fór Ingólfur Bender, aðalhagfræðingur SI, yfir stöðuna í byggingariðnaði. Hann benti á að greinin væri komin í samdrátt. Tekjur hafi dregist saman um 4,3% að raunvirði, atvinnulausum hafi fjölgað um þriðjung á einu ári og virk uppbygging íbúða hafi minnkað um 31% frá því í mars. Á sama tíma auki hið opinbera kostnaðinn með hærri gjöldum sveitarfélaga og lækkun endurgreiðslu virðisaukaskatts.
Í máli Ingólfs kom fram að stjórnvöld ráði miklu um hversu djúpur samdrátturinn verður. Hann sagði Samtök iðnaðarins leggja meðal annars áherslu á lægri verðbólgu og vexti, að endurgreiðsla virðisaukaskatts haldist að minnsta kosti í 35%, lægri og fyrirsjáanlegri gjöld sveitarfélaga, lóðaframboð í takt við eftirspurn og einfaldara regluverk.




