„Við hjá Samtökum iðnaðarins og ýmsir aðrir vöruðum við þessari stöðu í talsverðan tíma. Sem sagt hvert skref á fætur öðru var tekið í þessa átt. Þannig að til dæmis í mars á þessu ári þá þótti okkur einsýnt að það yrði ekki aftur snúið. Við vorum komin svona við getum bara sagt fram á brúnina þannig að það yrði skellur. Og við erum að sjá þetta núna og hann gæti auðvitað orðið enn þá meiri á næstu mánuðum,“ segir Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI, meðal annars í samtali við Pál Magnússon á Sprengisandi á Bylgjunni þar sem þeir ræða stöðuna í byggingariðnaði.
Umsvif byggingariðnaðar skiptir mjög miklu fyrir samfélagið
Sigurður segir að byggingariðnaður á Íslandi sé mjög stór atvinnugrein. „Á síðasta ári voru um 20.000 manns starfandi í byggingariðnaði. Veltan var um 700 milljarðar á síðasta ári til að setja það í samhengi. Skattsporið 188 milljarðar, þar af þröngt skattspor sem sagt beinir skattar, launaskattar, voru 83 milljarðar. Þannig að umsvifin skipta mjög miklu máli fyrir samfélagið.“ Hann segir að þessi grein skipti einnig mjög miklu máli vegna þess að hún þjónustar aðrar greinar og hið opinbera við uppbyggingu mannvirkja.
Sigurður segir að greinin sé í grunninn þrískipt. „Það snýst um uppbyggingu innviða, þetta snýst um atvinnuhúsnæði og þetta snýst um íbúðir. Og vandamálin sem við erum að sjá eru náttúrlega langmest þegar að kemur að uppbyggingu íbúða. Þar hefur orðið algjör viðsnúningur núna á kannski tveimur árum sem birtist í lengri sölutíma. Sölutími nýrra íbúða núna er sextán mánuðir. Hann var um átta mánuðir fyrir tveimur árum síðan.“ Hann segir það hafa veruleg áhrif að tíminn hafi tvöfaldast. „Þetta kemur ofan á hærri laun, þetta kemur ofan á stór hækkandi gjaldtöku sveitarfélaga sem reyndar nýir meirihlutar víðum landi eru að vinda ofan af. Þetta kemur ofan á hækkandi skattahækkun ríkisins en ríkið hefur verið á þeirri vegferð að lækka endurgreiðslu virðisaukaskatts á greinina sem er í reynd skattahækkun. Og síðan eru skipulagsmál sveitarfélaganna sem að valda miklum vandræðum. Sem sagt tímalínurnar eru mjög langar.“
Róa þarf að því öllum árum að ná niður verðbólgu og vöxtum
Í samtalinu kemur fram að háir vextir séu stór hluti vandans. „Það er bara staðan að háir vextir auðvitað hafa veruleg áhrif bæði á þá sem eru að byggja íbúðirnar og líka á kaupendurna,“ segir Sigurður. Hann segir það bætast ofan á aðra þætti. „Þannig að ég held að það séu engar einfaldar lausnir í þessu. Það þarf að auðvitað að róa að því öllum árum að ná niður verðbólgunni og vöxtunum.“ Sigurður segir að Seðlabankinn ætti að horfa lengra fram í tímann heldur en hann gerir og vera framsýnni. „En engu að síður þá er aðhaldið mjög mikið sem gerir það að verkum að skellurinn verður harðari. Þetta verður harðari lending en ella.“
Á vef Vísis er hægt að hlusta á viðtalið í heild sinni.
Sprengisandur á Bylgjunni, 22. nóvember 2026.
Vísir, 22. nóvember 2026.



