Samtök iðnaðarins fagna fyrirhugaðri endurskoðun mannvirkjalaga og styðja markmið um einfaldara regluverk, skýrari ábyrgð, áhættumiðað eftirlit, bættri neytendavernd og aukna skilvirkni í mannvirkjagerð. Í umsögn SI kemur fram að samtökin telji frumvarpið hins vegar ekki tækt til framlagningar á Alþingi í núverandi mynd.
Í umsögninni eru gerðar athugasemdir við að mat á áhrifum breytinganna liggi ekki fyrir þrátt fyrir umfangsmiklar kerfisbreytingar. Sérstaklega er kallað eftir skýrari ábyrgðarskiptingu við afnám byggingarstjórakerfisins, raunhæfri tryggingavernd iðnmeistara og skýrari umgjörð um nýtt eftirlitskerfi, ábyrgð skoðunarstofa og kostnað.
Samtök iðnaðarins leggjast jafnframt alfarið gegn því að lögbundin skylda til samráðs við hagsmunaaðila verði felld brott. Þau leggja áherslu á að samráð við atvinnulífið sé forsenda þess að nýtt regluverk verði skilvirkt og taki mið af raunverulegum aðstæðum í mannvirkjagerð.
Samtökin leggja jafnframt áherslu á að einföldun mannvirkjalaga dugi ekki ein og sér til að lækka byggingarkostnað. Samhliða þurfi að ráðast í umbætur á stjórnsýslu sveitarfélaga, skipulagsferlum og opinberri gjaldtöku.
Samtök iðnaðarins kalla eftir því að frumvarpið verði tekið til frekari vinnslu í samstarfi við atvinnulífið, áhrifamat lagt fram og úr helstu annmörkum bætt áður en það verður lagt fram á Alþingi.
Hér er hægt að nálgast umsögnina í heild sinni.



